Enn hefur ekki komið mark beint úr aukaspyrnu í Bestu deildinni nú þegar 50 leikir hafa verið spilaðir í deildinni.
Sömu sögu er ekki hægt að segja úr Lengjudeildinni sem virðist vera frábær deild fyrir áhugamenn um aukaspyrnumörk.
Eftir því sem Fótbolti.net kemst næst hafa komið sjö mörk úr fyrstu sex umferðum Lengjudeildarinnar. Alls hafa 36 leikir verið spilaðir sem er fjórtán leikjum minna en í Bestu deildinni.

Elmar Kári Cogic og Emil Nói Sigurhjartarson hafa báðir skorað tvö mörk beint úr aukaspyrnum í fyrstu sex umferðum Lengjudeildarinnar. Þá skoraði Elmar jafnframt mark beint úr aukaspyrnu gegn Njarðvík í Mjólkurbikarnum.
Aukaspyrnumörkin í Lengjudeildinni:
Kári Kristjánsson (Þróttur R.) gegn Aftureldingu
Sigurður Egill Lárusson (Þróttur R.) gegn Aftureldingu
Ibrahima Balde (Vestri) gegn HK
Elmar Kári Cogic (Afturelding) gegn Gróttu
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) gegn Grindavík
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR) gegn Þrótti
Elmar Kári Cogic (Afturelding) gegn ÍR