,,Mitt mat er að við vorum með dálitla minnimáttarkennd þegar við komum inn í leikinn, við erum búnir að spila mikið í neðri deildum." sagði Halldór Árnason, annar þjálfara KV eftir 2-3 tap KV gegn HK í Egilshöllinni í kvöld.
Hann bætti við:,,Undirbúningstímabilið hefur verið þannig að við höfum spilað á móti mikið af úrvalsdeildarliðum, legið svolítið til baka og reynt að beita skyndisóknum. Það virtist vera að við áttuðum okkur ekki á því fyrr en í seinni hálfleiknum að við áttuðum okkur á því að við gátum gert miklu meira og sýndum hvað við getum."
,,Leikurinn kannski þróaðist þannig að við vorum 85% með boltann í leiknum, sköpuðum okkur lítið, fáum á okkur 3 mörk og við fengum fleiri færi meira að segja. Við kannski vorum ekki alveg klárir í þetta en sýndum smá karakter hérna í lokin og reyndum að sækja jafnteflið en það var kannski of lítið eftir."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
























