Keith Andrews, stjóri Brentford, var vonsvikinn eftir 3-0 tap liðsins gegn Man City í kvöld.
Hann vildi fá vítaspyrnu þegar Kevin Schade féll í teignum í baráttunni við Matheus Nunes á 71. mínútu þegar staðan var enn 1-0.
Hann vildi fá vítaspyrnu þegar Kevin Schade féll í teignum í baráttunni við Matheus Nunes á 71. mínútu þegar staðan var enn 1-0.
„Þetta var mjög svekkjandi. Í hvaða heimi fer hann niður nema það sé snerting, það á ég erfitt með að skilja. Því markmiðið er að koma okkur aftur í 1-1. Ég á erfitt með að skilja þetta," sagði Andrews.
„Ég heyrði að snertingin hafi ekki verið nægilega mikil. Ég veit ekki hversu mikla snertingu dómarinn er að leitast eftir hjá einhverjum eins fljótum og Kevin Schade er og með augun á markinu."


