Það komu nokkrar íslenskar atvinnukonur í fótbolta við sögu í leikjum dagsins þar sem Sveindís Jane var á sínum stað í fremstu víglínu hjá Angel City en tókst ekki að skora í tapi á heimavelli. Þetta var fjórði tapleikurinn í röð hjá liðinu.
Ásdís Karen Halldórsdóttir kom inn af bekknum í sigri Braga í efstu deild í Portúgal. Ásdís og stöllur enda um miðja deild með 24 stig eftir 18 umferðir.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir var þá ekki í hóp hjá Parma sem tapaði gegn Milan. Parma siglir lygnan sjó fyrir lokaumferð ítölsku deildarinnar.
Í gær gerði Anderlecht að lokum jafntefli við OH Leuven í titilbaráttunni í Belgíu. Leuven er núna aðeins einum sigri frá því að tryggja sér titilinn þegar tvær umferðir eru eftir.
Þetta er afar svekkjandi fyrir Anderlecht sem þurfti á sigri að halda en missti leikmann af velli í fyrri hálfleik og lék því stærsta hluta leiksins einum færri. Anderlecht er svo gott sem úr leik í titilbaráttunni en Íslendingaliðið er öruggt með annað sæti deildarinnar sem veitir þátttökukeppni í Evrópubikarinn á næstu leiktíð.
Þrátt fyrir að vera einum færri náði Anderlecht forystunni í síðari hálfleik en Leuven tókst að gera jöfnunarmark á 89. mínútu, svo lokatölur urðu 1-1.
Andrea Rut Bjarnadóttir lék fyrri hálfleikinn í gær og fékk Vigdís Lilja Kristjánsdóttir að spila síðasta stundarfjórðunginn.
Angel City 1 - 2 San Diego Wave
Braga 2 - 0 Vitoria Guimaraes
Milan 3 - 1 Parma
Leuven 1 - 1 Anderlecht


