KA 2 - 0 ÍBV
1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('17)
2-0 Felix Örn Friðriksson ('90, sjálfsmark)
1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('17)
2-0 Felix Örn Friðriksson ('90, sjálfsmark)
Lestu um leikinn: KA 2 - 0 ÍBV
KA og ÍBV áttust við í lokaleik sjöttu umferðar Bestu deildar karla og náði Hallgrímur Mar Steingrímsson forystunni í fyrri hálfleik með skoti af miðjum velli.
Hallgrímur skoraði í opið mark eftir að Ari i Haraldstovu Petersen, markvörður Eyjamanna, hljóp úr markinu til að hreinsa eftir stungusendingu. Ari náði til boltans á undan Oliver Heiðarssyni en hreinsunin fór beint á Hallgrím sem skoraði af löngu færi.
Leikurinn var rólegur og bauð ekki upp á mikið af færum. Eyjamenn juku sóknarþungan á lokakaflanum en fengu mark í bakið þegar Felix Örn Friðriksson fékk lága fyrirgjöf í sig og skoraði sjálfsmark.
Sjálfsmarkið innsiglaði sigur Akureyringa svo lokatölur urðu 2-0. Þetta er annar sigurinn í röð hjá KA sem er núna með 7 stig eftir 6 umferðir á meðan ÍBV situr eftir á botninum með 1 stig.


