Grealish til Þýskalands - Kepa til Arsenal - Bayern með tvö skotmörk - Semenyo til Spurs eða Man Utd
   þri 10. júní 2025 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Amin Cosic: Get ekki beðið eftir því að spila fyrir KR
Lengjudeildin
'Þetta tímabil hefur byrjað mjög vel'
'Þetta tímabil hefur byrjað mjög vel'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þegar Óskar hafði samband við mig var þetta pínu 'no brainer'
Þegar Óskar hafði samband við mig var þetta pínu 'no brainer'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Gunnar er besti þjálfari sem ég hef verið með hingað til.'
'Gunnar er besti þjálfari sem ég hef verið með hingað til.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Þórhallur Dan hjálpaði mér að semja við Njarðvík'
'Þórhallur Dan hjálpaði mér að semja við Njarðvík'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Erfið tilhugsun þar sem Njarðvík hefur gert fáránlega mikið fyrir mig, þessi hópur, þjálfararnir og þetta lið hefur hjálpað mér mjög mikið að þróast sem leikmaður'
'Erfið tilhugsun þar sem Njarðvík hefur gert fáránlega mikið fyrir mig, þessi hópur, þjálfararnir og þetta lið hefur hjálpað mér mjög mikið að þróast sem leikmaður'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Amin Cosic var á dögunum keyptur frá Njarðvík til KR. Hann gengur formlega í raðir KR eftir að Njarðvík spilr við Fylki þann 18. júlí.

Amin er kantmaður sem er alinn upp hjá HK en skipti yfir í Njarðvík fyrir tímabilið 2024 þar sem hann var í leit að fleiri tækifærum í meistaraflokksbolta. Hann var mikið í því að koma inn sem varamaður á síðasta tímabili en í vetur og upphafi tímabilsins með Njarðvík hefur hann sprungið út.

Fótbolti.net ræddi við Amin um félagaskiptin.

„Þetta er mjög spennandi, ég get eiginlega ekki beðið eftir að byrja hjá KR. Það sem heillar mig mest er klárlega bara að spila fyrir KR, frábært og stórt félag með geggjaða sögu og geggjaða stuðningsmenn," segir Amin.

„Þetta var pínu óvænt, ég var ekki endilega að búast við þessu svona snemma á tímabilinu. Aðdragandinn var þannig að ég átti mjög gott spjall við Óskar eftir að tilboð barst frá KR og Óskar seldi mér þetta klárlega."

Er erfið tilhugsun að yfirgefa Njarðvík fljótlega? Hvernig heldur þú að síðustu vikurnar verði?

„Erfið tilhugsun þar sem Njarðvík hefur gert fáránlega mikið fyrir mig, þessi hópur, þjálfararnir og þetta lið hefur hjálpað mér mjög mikið að þróast sem leikmaður. Það verður 100% einbeiting á Njarðvík síðustu fimm vikurnar, á markmiðin okkar þar og hjá mér að halda áfram að gera mitt allra besta."

Kitlaði þig að klára tímabilið í Njarðvík, eða er meira spennandi að fara í Bestu?

„Þetta er auðvitað Besta deildin og mig langar auðvitað að spila með þeim bestu."

Hvernig líst Amin á spila undir stjórn Óskars Hrafns?

„Óskar er að mínu mati einn besti, ef ekki besti þjálfari á Íslandi og ég er mjög spenntur að spila undir honum. Þegar Óskar hafði samband við mig var þetta pínu 'no brainer'. Ég býst ekki við öðru en að fá að spila, ég veit hvað ég get, en auðvitað þarf ég að leggja mig allan fram og sýna hvað ég get."

Hvernig hefur tíminn hjá Njarðvík verið til þessa?

„Þetta hefur verið súrt og sætt, spilaði lítið á mínu fyrsta tímabili með Njarðvík. Þetta tímabil hefur byrjað mjög vel, bæði fyrir mig og liðið og vonandi heldur velgengnin áfram."

„Gunnar er besti þjálfari sem ég hef verið með hingað til. Hann hefur hjálpað mér mjög mikið í að þróa mig sem leikmann og gera mig að þeim leikmanni sem ég er í dag. Gunnar er mjög góður í því að fá það besta úr leikmönnum og mótivera þá áfram og gefa þeim trú. Þetta er ekki bara Gunnar heldur líka Arnar Smára og Sigurður Már sem eiga stórt hrós skilið."


Hvernig gerðist það að Amin fór til Njarðvíkur á sínum tíma?

„Þórhallur Dan hjálpaði mér að semja við Njarðvík þar sem hann þekkir Gunnar og vissi að hann væri fullkominn þjálfari fyrir mig. Ég er ennþá í miklum samskiptum við Þórhall og hefur hann hjálpað mér mjög mikið með margt annað, ásamt því að gefa mér góð ráð þegar ég þarf á þeim að halda."

Voru fleiri kostir en KR sem þú íhugaðir?

„Já, það komu svo sem fleiri boð frá öðrum liðum," segir Amin að lokum.

Athugasemdir
banner