Carlo Ancelotti, þjálfari brasilíska landsliðsins, segir að hann þurfi að taka erfiða ákvörðun þegar hann tilkynnir lokahópinn sem mun keppa fyrir þjóðina á HM.
Ítalinn valdi Neymar í 55-leikmanna úrtakshóp fyrir heimsmeistaramótið en mun tilkynna lokahópinn á mánudag.
Neymar, sem hefur verið að gera það gott með Santos síðustu vikur, er að berjast um að komast á HM sem verður líklega síðasta stórmótið hans á ferlinum.
Ancelotti ræddi við Reuters um Neymar, en hann segist ekki finna fyrir pressu að velja hann í lokahópinn.
„Það þarf að taka margt inn í myndina þegar þú ert að velja hópinn. Neymar er mikilvægur leikmaður fyrir þjóðina vegna hæfileikanna sem hann hefur alltaf sýnt. Hann hefur glímt við einhver vandamál, en er að leggja hart að sér að koma til baka.“
„Neymar hefur bætt sig mikið á síðustu vikum og er að spila reglulega. Þetta er augljóslega ekki auðveld ákvörðun fyrir mig þannig við þurfum að fara vandlega yfir kosti og galla, en það setur enga sérstaka pressu á mig. Við höfum verið að meta Neymar og alla hina leikmennina í heilt ár,“ sagði Ancelotti.



