„Það er skepna," sagði Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, við Fótbolta.net er hann var spurður út í varnarmanninn Eivind Helland.
Helland hefur getið af sér gott orð í Noregi þrátt fyrir ungan aldur. Hann er bara tvítugur en spilar þrátt fyrir það stórt hlutverk í liðinu hjá Freysa.
Helland hefur getið af sér gott orð í Noregi þrátt fyrir ungan aldur. Hann er bara tvítugur en spilar þrátt fyrir það stórt hlutverk í liðinu hjá Freysa.
Hann hefur verið orðaður við stærri félög og það er mörg augu á honum.
„Hann er 1,96 á hæð, 92 kíló, öskufljótur og frábær á boltanum. Settu verðskilti á ennið á honum og svo sjáum við hvaða talan verður stór," sagði Freyr.
„Það er bara spurning hvenær hann fer, en ég vona að ég haldi honum út árið. Hann er enn í þróun."
„Ég veit bara til dæmis að í leiknum á morgun eru tvö félög frá Bretlandi að horfa á hann. Ég veit ekki hvort að hann viti það," sagði Freyr og átti þar við leikinn gegn Kristiansund þar sem Brann vann 4-2 sigur.
„Hann er gríðarlega efnilegur og við erum með fleiri spennandi leikmenn."
Freyr nefndi þar til dæmis líka Eggert Aron Guðmundsson sem er bara 21 árs gamall og er í stóru hlutverki hjá Brann.
Hægt er að hlusta á allt viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.
Athugasemdir