Lazio og Ítalíumeistarar Inter mætast í úrslitum ítalska bikarsins klukkan 19:00 í kvöld.
Inter á möguleika á því að vinna tvennuna á Ítalíu eftir að hafa fagnað deildarmeistaratitlinum fyrir tíu dögum.
Þetta er hins vegar eina tækifæri Lazio til þess að vinna titil og komast í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
Inter hefur unnið bikarinn níu sinnum á meðan Lazio hefur unnið hann sjö sinnum. Inter varð síðast bikarmeistari árið 2023 á meðan Lazio hefur ekki unnið hann í sjö ár.
Leikur dagsins:
19:00 Lazio - Inter



