Manchester United er áberandi í Powerade slúðurpakkanum í dag. BBC tók saman það helsta sem er í umræðinni. Njótið dagsins!
Manchester United íhugar að gera óvænt tilboð í úrúgvæska miðjumanninn Federico Valverde (27) hjá Real Madrid. (Star)
Manchester United hefur aukinn áhuga á brasilíska miðjumanninum Ederson (26) hjá Atalanta og portúgalska miðjumannum Mateus Fernandes (21) hjá West Ham. (Sky Sports)
Sparkspekingurinn Dion Dublin segir að leikmenn og stuðningsmenn Manchester United séu ánægðir með Michael Carrick sem eigi skilið að fá stjórastarfið til frambúðar. (Sky Sports)
Argentínski sóknarmaðurinn Julian Alvarez (26) hjá Atletico Madrid er kominn efstur á óskalista Paris St-Germain fyrir næsta tímabil. (ESPN)
Varnarmaðurinn Ben White (28) gæti hafnað Everton í sumar ef hann fær fullvissu um spiltíma sinn hjá Arsenal. (Football Insider)
Hjá Real Madrid eru menn óvissir um hvort nýta eigi ákvæði um að kaupa spænska varnarmanninn Jacobo Ramon (21) aftur til baka frá Como í sumar. (Sun)
Belgíski miðjumaðurinn Youri Tielemans (29) gæti yfirgefið Aston Villa eftir tímabilið. (Football Insider)
Enski framherjinn Jarrod Bowen (29) gæti verið áfram hjá West Ham, jafnvel þó liðið falli úr ensku úrvalsdeildinni. (Teamtalk)
Porto hefur mikinn áhuga á að fá pólska sóknarmanninn Robert Lewandowski (37) á frjálsri sölu í sumar en enn er mögulegt að hann geri nýjan samning við Barcelona. (Florian Plettenberg)
Þrátt fyrir að hafa hjálpað Nottingham Forest að sigrast á falldraugnum gæti félagið ráðið Marco Silva, stjóra Fulham, í stað Vítor Pereira. (Teamtalk)
Michael Carrick færist nær því að taka við Manchester United en Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, kemur ekki lengur til greina. (Mai)
Chelsea hefur rætt við Xabi Alonso, fyrrum stjóra Real Madrid, og hefur trú á að geta fengið hann til að taka við. Chelsea hefur einnig sett sig í samband við Andoni Iraola og Marco Silva. (Times)

