Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fim 13. júní 2019 18:00
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Gylfi og Alexandra á leið í brúðkaupsveisluna
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Eyþór Árnason
Skærasta fótboltastjarna Íslands, Gylfi Þór Sigurðsson, mun á laugardaginn ganga í hjónaband.

Athöfnin fer fram á Ítalíu, við Como-vatnið, og má búast við því að mikið verði um dýrðir.

Gylfi og kærasta hans Al­ex­andra Helga Ívars­dótt­ir munu þá giftast í góðra vina hópi.

Gylfi, sem leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Everton, bað Al­exöndru Helgu í fríi á Bahama-eyj­um síðasta sum­ar en þau opinberuðu samband sitt 2011.

Á Instagram í dag birtu Gylfi og Alexandra myndir af sér í einkaflugvél á leið frá Mílanó til Como.
Athugasemdir
banner
banner