Eyjakonan Embla Harðardóttir hefur, þrátt fyrir ungan aldur, spilað stórt hlutverk í liði ÍBV undanfarin ár. Hún lék sinn fyrsta leik 2022 og hlutverkið hefur bara stækkað síðan.
Hún skoraði eitt mark í Lengjudeildinni í fyrra þegar Eyjakonur unnu deildina og komust aftur upp í Bestu deildina. Embla er djúpur miðjumaður sem sýnir í dag á sér hina hliðina.
Hún skoraði eitt mark í Lengjudeildinni í fyrra þegar Eyjakonur unnu deildina og komust aftur upp í Bestu deildina. Embla er djúpur miðjumaður sem sýnir í dag á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Embla Harðardóttir
Gælunafn: Hef ekki neitt
Aldur: 19 ára
Hjúskaparstaða: Föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var heimaleikur 2021 á móti Fylki í síðasta leiknum í Pepsí deildinni, unnum 5-0 og Fylkir féll. Ekkert þannig minnisstætt úr leiknum.
Uppáhalds drykkur: Nocco
Uppáhalds matsölustaður: Vöruhúsið og Serrano
Uppáhalds tölvuleikur: Ég spila ekki tölvuleiki
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi yfirleitt ekki á sjónvarpsþætti en hef gaman af Gray’s Anatomy
Uppáhalds tónlistarmaður: Birnir
Uppáhalds hlaðvarp: Hlusta ekki mikið á hlaðvörp en finnst Falsfréttir skemmtilegt
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram og TikTok
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net og sjólag.is er orðin sérfræðingur í ölduhæð
Fyndnasti Íslendingurinn: Það er Steindi Jr.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „Getur þú reddað mér nocco áður en þú ferð????“
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Agla María Albersdóttir
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ég hef verið mjög heppinn með marga góða þjálfara sem hafa hjálpað mér mikið þannig það er erfitt að gera upp á milli þeirra. Guðmundur Tómas, Jonathan Glenn og Jón Óli eru topp menn!!
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Nokkrar sem koma til greina en óþarfi að nefna þær hér
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Sigríður Lára Garðarsdóttir í fótboltanum, mamma í lífinu
Sætasti sigurinn: Leikurinn á móti Tindastól í Mjólkurbikarnum í fyrra var sætur
Mestu vonbrigðin: Tap á móti Breiðablik í undanúrslitum í Mjólkurbikarnum í fyrra, situr enn í mér
Uppáhalds lið í enska: Liverpool
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Væri til í að fá Ídu Marín Hermannsdóttur, held að hún væri góð viðbót í liðið og á tengingar til eyja
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Tanja Harðardóttir litla systir mín er mikið efni
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Þorri Heiðar Bergmann
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Tanja Harðardóttir
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Maradonna
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Uppsöfnun á gulum spjöldum, þarf að endurskoða það 4 spjöld er alltof lítið
Uppáhalds staður á Íslandi: Klárlega Herjólfsdalur í Vestmannaeyjum fyrstu helgina í ágúst!
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Ekkert sem mér dettur í hug
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Ég spila alltaf í sama íþróttatoppnum
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, handboltinn getur verið mjög spennandi
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Ég er í Nike Mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Ég og efnafræði eigum enga samleið
Vandræðalegasta augnablik: Sjálfsmarkið á móti FHL sumarið 2024, langaði að grafa mér holu
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Ég myndi bjóða Thelmu Sól, Rögnu Söru og Nínu Zinovievu fyrir eintóma skemmtun
Bestur/best í klefanum og af hverju: Allison Lowrey er ekkert eðlilega fyndin
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég væri til í að sjá Allison Lowrey koma inn sem bombshell í Love Island, það væri gott sjónvarpsefni
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Talaði reiprennandi dönsku 4 ára, kann ekki stakt orð núna
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Lettarnir okkar Olga, Sandra og Viktorija, var lengi hrædd við þær en þær eru algjörar stemningskonur
Hverju laugstu síðast: Ég laug að ég væri ekki í peysunni hennar systur minnar
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Hlaup án bolta
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja vegagerðina hvenær Landeyjarhöfn opnar
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Ég vil hvetja alla til þess að mæta á Hásteinsvöll í sumar og styðja okkur stelpurnar, ykkar stuðningur skiptir okkur miklu máli!!

