Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 21:45
Ívan Guðjón Baldursson
Rosenior um breytingarnar: Þurfti að sjá hvernig þeir spila
Garnacho reyndist mikilvægur gegn Wrexham.
Garnacho reyndist mikilvægur gegn Wrexham.
Mynd: Chelsea
Liam Rosenior þjálfari Chelsea var ekki sérlega ánægður með frammistöðu sinna manna í naumum bikarsigri gegn Wrexham í dag.

Chelsea lenti undir í tvígang í venjulegum leiktíma en náði að jafna til að knýja leikinn í framlengingu. Leikmaður Wrexham fékk að líta beint rautt spjald í uppbótartíma svo ellefu leikmenn Chelsea náðu að landa sigri í framlengingunni, en heimamenn í liði Wrexham fengu góð færi til að skora þrátt fyrir að vera einum færri.

„Við erum komnir áfram, það skiptir öllu. Þetta var ekki besta frammistaðan í virkilega erfiðum leik. Ég varð að gefa leikmönnum sem hafa ekki fengið margar mínútur tækifæri, ég þurfti að sjá hvernig þeir spila," sagði Rosenior, sem gerði níu breytingar á byrjunarliðinu eftir frábæran sigur á Villa Park í miðri viku.

„Við erum það lið sem hefur spilað flesta leiki af öllum félagsliðum heims síðustu 18 mánuði. Það væri brjálæði að gefa leikmönnum ekki hvíld af og til, það ógnar heilsu þeirra. Við megum ekki missa menn í meiðsli þegar við höfum svona háleit markmið.

„Það er margt jákvætt sem við getum tekið úr þessum leik, og við erum komnir áfram í næstu umferð."

Athugasemdir
banner