Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 12:12
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu frábært aukaspyrnumark Mata í Ástralíu
Juan Mata hefur komið að fjórtán mörkum á tímabilinu
Juan Mata hefur komið að fjórtán mörkum á tímabilinu
Mynd: EPA
Spænski sóknartengiliðurinn Juan Manuel Mata er að gera það gott með Melbourne Victory í Ástralíu en hann skoraði eitt af mörkum tímabilsins í morgun.

Mata kom til Victory í september á síðasta ári og hefur síðan þá komið að fjórtán mörkum í áströlsku deildinni.

Á dögunum skoraði hann tvö frábær mörk í grannaslag og þá gerði hann glæsimark í 2-2 jafntefli gegn Sydney FC í dag.

Spánverjinn, sem lék áður með ensku félögunum Chelsea og Manchester United, klíndi aukaspyrnu í samskeytin og kom sínu liði í 1-0 forystu. Geggjað mark hjá Mata sem má sjá hér fyrir neðan.

Victory er i 5. sæti deildarinnar með 29 stig, ellefu stigum frá toppliði Newcastle Jets.


Athugasemdir
banner
banner