Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   lau 07. mars 2026 17:18
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Tvö rauð er Coventry vann fimmta leikinn í röð - Dýrmætt stig hjá Andra
Frank Lampard er á hraðri leið upp með Coventry
Frank Lampard er á hraðri leið upp með Coventry
Mynd: EPA
Andri Lucas kom inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli
Andri Lucas kom inn á sem varamaður í 1-1 jafntefli
Mynd: Blackburn Rovers
Coventry City er aftur komið með átta stiga forystu á toppi ensku B-deildarinnar eftir að hafa unnið Bristol City, 2-0, á Ashton Gate í dag.

Toppliðið er komið aftur í stuð eftir smá hikst í byrjun árs en japanski leikmaðurinn Tatsuhiro Sakamoto kom þeim á bragðið í dag þegar 37 mínútur voru liðnar.

Joel Latibeaudiere, varnarmaður Coventry sá rautt nokkrum mínútum síðar, en það hafði lítil sem engin áhrif á gestina sem bættu við öðru undir lok hálfleiksins.

Adam Randell, leikmaður Bristol City, sá rauða spjaldið á 56. mínútu og var því aftur jafnt í liðum.

Coventry sigldi sigrinum heim og er komið með 66 stig, átta stigum meira en Middlesbrough sem er í öðru sæti og á að vísu leik til góða.

Andri Lucas Guðjohnsen kom inn af bekknum er Blackburn Rovers gerði 1-1 jafntefli við Portsmouth.

Hann kom inn á þegar hálftími var til leiksloka. Portsmouth tók forystuna á 84. mínútu en undir lok leiks jafnaði Hayden Carter metin úr miðjum teignum eftir fyrirgjöf frá hægri.

Gæti reynst dýrmætt stig þegar talið verður upp úr pokanum í vor, en Blackburn er í 20. sæti með 39 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti þegar tíu umferðir eru eftir.

Úrslit og markaskorarar:

Charlton Athletic 1 - 0 Birmingham
1-0 Charlie Kelman ('74 )

Bristol City 0 - 2 Coventry
0-1 Tatsuhiro Sakamoto ('37 )
0-2 Haji Wright ('45 )
Rautt spjald: ,Joel Latibeaudiere, Coventry ('43)Adam Randell, Bristol City ('56)

Sheffield Utd 1 - 1 West Brom
1-0 George Campbell ('53 , sjálfsmark)
1-1 George Campbell ('83 )

Ipswich Town 1 - 1 Leicester City
0-1 Patson Daka ('39 )
1-1 Sindre Walle Egeli ('76 )

Hull City 1 - 3 Millwall
0-1 Jake Cooper ('14 )
1-1 Joe Gelhardt ('18 )
1-2 Mihailo Ivanovic ('70 )
1-3 Josh Coburn ('78 )

Derby County 2 - 1 Sheffield Wed
1-0 Ben Brereton Diaz ('11 )
1-1 Jerry Yates ('17 )
2-1 Matt Clarke ('45 )

Swansea 2 - 0 Stoke City
1-0 Zan Vipotnik ('53 )
2-0 Liam Cullen ('90 )
Rautt spjald: Sorba Thomas, Stoke City ('36)

Blackburn 1 - 1 Portsmouth
0-1 Connor Ogilvie ('85 )
1-1 Hayden Carter ('90 )
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
3 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
14 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
15 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner
banner
banner