Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
   lau 07. mars 2026 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jordon Ibe lýsir yfir sakleysi
Daniel Sturridge og Ibe á æfingu hjá Liverpool fyrir tíu árum síðan.
Daniel Sturridge og Ibe á æfingu hjá Liverpool fyrir tíu árum síðan.
Mynd: EPA
Jordon Ibe, fyrrum kantmaður Liverpool, hefur lýst opinberlega yfir sakleysi sínu eftir að hafa verið kærður fyrir líkamsárás.

Ibe er 30 ára gamall og er kærður fyrir líkamsárás gegn konu í London þann 14. desember. Réttarhöldin fara fram 14. júlí.

Ibe, sem lék fimmtán leiki fyrir yngri landslið Englands, er í dag samningsbundinn Lokomotiv Sofia en hefur lítið sem ekkert fengið að spreyta sig vegna þrálátra meiðsla sem hann er búinn að glíma við undanfarin ár.

Hann lék einnig með Derby County, Birmingham og Bournemouth á dvöl sinni á Englandi og fór svo í utandeildirnar vegna mikilla meiðslavandræða.

   16.02.2026 09:36
Fyrrum leikmaður Liverpool ákærður fyrir líkamsárás

Athugasemdir
banner
banner