Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 11:03
Brynjar Ingi Erluson
Varnarleikur Trent harðlega gagnrýndur - „Guð minn góður“
Trent Alexander-Arnold
Trent Alexander-Arnold
Mynd: EPA
Spænska blaðið Marca er ekki sannfært þegar það kemur að Trent Alexander-Arnold og ákvörðun Real Madrid að fá hann frá Liverpool.

Trent kom á frjálsri sölu síðasta sumar og verið að vinna sig inn í hlutina hjá Madrídingum.

Meiðsli hafa haldið honum frá velli í mörgum leikjum en þetta hefur verið upp og ofan hjá honum og virðist skipta öllu máli hvort hann sé með boltann eða án hans.

Hann átti sök í markinu sem Real Madrid fékk á sig í 2-1 sigrinum á Celta Vigo í gær, en blaðamaður Marca var í hálfgerðu áfalli með varnarleik Englendingsins.

„Guð minn góður Trent, þvílík varnarframmistaða frá enska leikmanninum í þessu marki, ef varnarleik má kalla. Hægur, úr stöðu og algerlega týndur í teignum,“ sagði miðillinn.

„Þetta er Trent, sá sem kom stöðunni í 1-1, spilaði illa í vörninni og sá sami og átti frábæra sendingu á Vinicius í skotinu sem hafnaði í stönginni. Það er gjörólíkt þegar hann er með boltann og þegar hann er án hans.“

Þegar Trent lék með Liverpool var varnarleikur hans oft til umræðu í ensku miðlunum, en ótrúlegir hæfileikar hans fram á við bættu það upp, að mestu.


Athugasemdir
banner
banner