Newcastle og Manchester City eigast við í 16-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld. Þetta er fjórða innbyrðisviðureign þessara olíuríka fótboltaliða á dagatalsárinu, eftir að liðin mættust einnig í lok nóvember.
Þetta er því í fimmta sinn sem liðin mætast á þremur og hálfum mánuði.
Newcastle vann frækinn sigur á Manchester United í miðri viku þar sem tíu lærlingar Eddie Howe höfðu betur þrátt fyrir að vera manni færri. Howe gerir fjórar breytingar frá byrjunarliðinu sem lagði Rauðu djöflana að velli.
William Osula fær tækifæri í byrjunarliðinu eftir að hafa gert gullfallegt og dramatískt sigurmark í miðri viku og er Þjóðverjinn hávaxni Nick Woltemade með honum í fremstu víglínu.
Joe Willock kemur þá inn á miðjuna fyrir Jacob Ramsey sem er í leikbanni og byrjar Sven Botman í hjarta varnarinnar í stað Dan Burn sem sest á bekkinn. Anthony Gordon og Joelinton þurfa á hvíld að halda og fara einnig á bekkinn.
Bakvörðurinn fjölhæfi Tino Livramento er þá kominn aftur í hóp eftir erfið meiðsli og byrjar á bekknum,
Til samanburðar gerir Pep Guardiola tíu breytingar á byrjunarliði Man City. Það er augljóst hvar hans forgangsröðun liggur, enda er City í harðri titilbaráttu við Arsenal á lokahnykk enska úrvalsdeildartímabilsins.
Matheus Nunes er eini leikmaðurinn sem heldur byrjunarliðssætinu eftir jafntefli gegn Nottingham Forest í miðri viku. Erling Haaland er ekki í hóp.
Newcastle: Ramsdale; Trippier, Thiaw, Botman, Hall; Tonali, Willock; Elanga, Woltemade, Barnes; Osula.
Varamenn: Pope, Joelinton, Wissa, Gordon, Livramento, J Murphy, Burn, A Murphy, Neave.
Man City: Trafford, Nunes, Khusanov, Stones, Ake, Gonzalez, Reijnders, O’Reilly, Savinho, Doku, Marmoush.
Varamenn: Donnarumma, Dias, Cherki, Guehi, Rodri, Bernardo Silva, Ait-Nouri, Semenyo, Foden.
Athugasemdir

