Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   lau 07. mars 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Oxford klifraði upp úr fallsæti í Preston
Mynd: Oxford
Mynd: Oxford
Preston 1 - 3 Oxford
0-1 Michal Helik ('5)
1-1 Milutin Osmajic ('12)
1-2 Will Lankshear ('55)
1-3 Ciaron Brown ('61)

Preston North End tók á móti Oxford United í eina leik gærkvöldsins í Championship deildinni á Englandi og náðu gestirnir forystunni snemma leiks. Michal Helik skoraði þá eftir hörmulegan varnarleik Preston í föstu leikatriði.

Milutin Osmajic var fljótur að jafna fyrir heimamenn með skalla eftir fyrirgjöf og ríkti jafnræði með liðunum í opnum fyrri hálfleik.

Staðan var 1-1 í hálfleik og náðu gestirnir forystunni á nýjan leik í síðari hálfleik. Will Lankshear skoraði með lúmsku skoti utan vítateigs sem fór í gegnum þvöguna án þess að breyta um stefnu og plataði þannig markvörð heimamanna og tvöfaldaði Ciaron Brown forystuna skömmu síðar.

Brown skoraði eftir langt innkast á 61. mínútu og fundu heimamenn í Preston aldrei leið aftur inn í leikinn. Þeir héldu boltanum nánast allan seinni hálfleikinn án þess að skapa sér mikið af tækifærum gegn skipulögðum gestum.

Þetta er gríðarlega dýrmætur sigur fyrir Oxford sem klifrar upp úr fallsæti eftir tvo sigra í röð. Liðið er með 35 stig eftir 36 umferðir og er í harðri fallbaráttu við West Bromwich Albion og Leicester þessa stundina.

Oxford endaði sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið í fyrra á sínu fyrsta tímabili eftir endurkomu í Championship deildina og vonast stjórnendur félagsins til að forðast fall annað ár í röð.

Blackburn Rovers, Portsmouth og Charlton Athletic eru í næstu sætum fyrir ofan og gætu sogast með í fallbaráttuna ef illa gengur í næstu leikjum.

Preston er um miðja deild með 49 stig, átta stigum frá umspilssæti. Liðið er aðeins búið að vinna einn deildarleik af síðustu tíu.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 43 25 11 7 85 43 +42 86
2 Ipswich Town 42 21 13 8 73 44 +29 76
3 Millwall 43 22 10 11 58 47 +11 76
4 Southampton 43 21 12 10 75 51 +24 75
5 Middlesbrough 43 20 13 10 64 44 +20 73
6 Hull City 43 20 9 14 65 61 +4 69
7 Wrexham 43 18 13 12 65 60 +5 67
8 Derby County 43 19 9 15 62 53 +9 66
9 Norwich 43 18 7 18 59 52 +7 61
10 Bristol City 43 16 10 17 54 55 -1 58
11 QPR 43 16 10 17 58 65 -7 58
12 Sheffield Utd 43 17 6 20 61 59 +2 57
13 Birmingham 43 15 12 16 52 53 -1 57
14 Watford 43 14 15 14 52 53 -1 57
15 Swansea 43 16 9 18 51 56 -5 57
16 Preston NE 43 14 15 14 50 55 -5 57
17 Stoke City 43 15 10 18 49 48 +1 55
18 Portsmouth 43 13 12 18 44 57 -13 51
19 Charlton Athletic 43 12 14 17 40 52 -12 50
20 West Brom 43 12 13 18 44 56 -12 49
21 Blackburn 44 12 13 19 39 54 -15 49
22 Oxford United 43 10 14 19 41 55 -14 44
23 Leicester 43 11 14 18 54 65 -11 41
24 Sheff Wed 43 1 12 30 26 83 -57 -3
Slapp
banner
banner