Arsenal er fyrsta enska úrvalsdeildarliðið til þess að rjúfa hundrað marka múrinn í öllum keppnum á þessari leiktíð, en það hafðist í 2-1 sigrinum á Mansfield Town í enska bikarnum í dag.
Fyrsta mark Arsenal í leiknum var í raun það sem rauf múrinn er Noni Madueke skoraði með laglegu skoti.
Eberechi Eze skoraði síðan 101. mark tímabilsins með þrumuskoti sem tryggði Arsenal áfram í 8-liða úrslit.
Arsenal er eina enska úrvalsdeildarfélagið til að fara yfir hundrað mörk á þessari leiktíð og aðeins þriðja liðið í topp fimm deildunum í Evrópu til þess að gera það á eftir Barcelona og Bayern München.
Spánarmeistarar Barcelona hafa skorað 110 mörk en Bayern er komið með 128 mörk.
100 - Arsenal are the first Premier League team to reach 100 goals in all competitions this season and just the third big five European league side to reach that milestone this term after Bayern Munich (128) and Barcelona (110). Ton. pic.twitter.com/aPFMC1K5Hb
— OptaJoe (@OptaJoe) March 7, 2026
Athugasemdir


