Smári 3 - 2 Elliði
1-0 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('17)
1-1 Eyjólfur Andri Sverrisson ('57)
2-1 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('59)
3-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('79)
3-2 Jóhann Andri Kristjánsson ('86)
1-0 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('17)
1-1 Eyjólfur Andri Sverrisson ('57)
2-1 Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson ('59)
3-1 Alexander Fannberg Gunnarsson ('79)
3-2 Jóhann Andri Kristjánsson ('86)
Smári og Elliði áttust við í C-deild Lengjubikars karla í dag og náði Gunnar Breki Myrdal Gunnarsson forystunni fyrir Smára í fyrri hálfleik.
Staðan var 1-0 í leikhlé en Eyjólfur Andri Sverrisson jafnaði metin fyrir gestina í síðari hálfleik.
Gunnar Breki var fljótur að svara með öðru marki sínu til að endurheimta forystuna áður en Alexander Fannberg Gunnarsson bætti öðru marki við á 79. mínútu.
Jóhann Andri Kristjánsson minnkaði muninn aftur niður í eitt mark undir lokin en nær komust gestirnir ekki. Lokatölur 3-2.
Smári fer á topp riðils 4 með sjö stig eftir þrjár umferðir. Elliði á eitt stig eftir tvær umferðir.
Athugasemdir


