Þróttur R. 5 - 3 Grindavík/Njarðvík
1-0 Madison Jeanne Ditta ('21 )
2-0 María Eva Eyjólfsdóttir ('37 )
2-1 Hannah McLaughlin ('60 )
3-1 Björg Gunnlaugsdóttir ('65 )
4-1 Unnur Dóra Bergsdóttir ('71 )
5-1 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('79 )
5-2 Hannah McLaughlin ('85 )
5-3 Lily Anna Farkas ('90 )
1-0 Madison Jeanne Ditta ('21 )
2-0 María Eva Eyjólfsdóttir ('37 )
2-1 Hannah McLaughlin ('60 )
3-1 Björg Gunnlaugsdóttir ('65 )
4-1 Unnur Dóra Bergsdóttir ('71 )
5-1 Þórdís Nanna Ágústsdóttir ('79 )
5-2 Hannah McLaughlin ('85 )
5-3 Lily Anna Farkas ('90 )
Þróttarar unnu 5-3 sigur á Grindavík/Njarðvík í A-deild Lengjubikarsins á AVIS-vellinum í Laugardalnum í dag.
Þróttur náði sínum besta árangri í efstu deild á síðasta ári með 48 stig á meðan Grindavík/Njarðvík vann sér sæti í Bestu deildina.
Madison Jeanne Ditta og María Eva Eyjólfsdóttir sáu til þess að Þróttur færi með 2-0 forystu inn í hálfleikinn, en Hannah McLaughlin minnkaði muninn hálftíma fyrir leikslok.
Eftir það náði Þróttur að gera út um leikinn á tæpum fimmtán mínútum. Björg Gunnlaugsdóttir, Unnur Dóra Bergsdóttir og Þórdís Nanna Ágústsdóttir skoruðu fyrir heimakonur en á síðustu mínútunum náðu gestirnir að klóra í bakkann með mörkum frá McLaughlin og Lily Anna Farkas.
Þetta var þriðji sigur Þróttar sem eru nú með 9 stig í öðru sæti, einu á eftir Stjörnunni, en Grindavík/Njarðvík í 3. sæti með 7 stig.
Þróttur getur tryggt sér efsta sæti riðilsins þegar það heimsækir FHL eftir viku í Fjarðabyggðarhöllinni.
Athugasemdir


