Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 12:54
Brynjar Ingi Erluson
Onana of dýr fyrir Trabzonspor - Snýr líklega aftur til Man Utd
Mynd: EPA
Kamerúnski markvörðurinn Andre Onana mun líklega ekki vera áfram hjá Trabzonspor í Tyrklandi en félagið er ekki reiðubúið að greiða verðmiðann sem Manchester United hefur sett á leikmanninn.

Man Utd sótti Senne Lammens frá Antwerp síðasta sumar til að taka við markvarðarstöðunni af Onana sem hafði átt tvö vonbrigðatímabil með United.

Onana hélt til Trabzonspor á láni og hefur staðið sig nokkuð vel á tímabilinu, en félagið er ekki að íhuga að gera skiptin varanleg á þessari stundu.

Zeyyat Kafkas, varaforseti Trabzonspor, tjáði Gunebakis að verðmiði Man Utd sé ekki raunhæfur fyrir tyrkneska félagið og því allar líkur á því að hann fari aftur til United í sumar.

Talið er að Onana vilji endurheimta markvarðarstöðuna hjá United á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner