Arsenal og Chelsea hafa áhuga á Bergvall - Emery á blaði Man Utd
   lau 07. mars 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Edwards: Liverpool voru framúrskarandi
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Rob Edwards þjálfari Wolves viðurkennir að lærlingar sínir hafi tapað fyrir betra liði þegar þeir fengu Englandsmeistara Liverpool í heimsókn í 16-liða úrslitum enska bikarsins í gærkvöldi.

Staðan var markalaus í leikhlé en Liverpool stjórnaði ferðinni og verðskuldaði að ná forystunni snemma í síðari hálfleik. Lokatölur urðu 1-3.

„Mér fannst þeir vera virkilega góðir, þetta eru ríkjandi Englandsmeistarar og við verðum að hrósa þeim fyrir gæðin sem þeir sýndu í kvöld. Þeir voru betri heldur en við í þessum leik," sagði Edwards við fréttamenn að leikslokum.

„Það var mikill skellur fyrir okkur að fá tvö mörk á okkur með svona stuttu millibili. Annað markið þeirra, sem kom kannski 30 sekúndum á eftir fyrra markinu, gerði út af við okkur andlega. Liverpool voru framúrskarandi.

„Ég er ánægður með baráttuna í strákunum og sérstaklega fyrri hálfleikinn. Þeir héldu áfram að berjast allan tímann og minnkuðu muninn með marki í uppbótartíma. Þetta er það sem ég vil sjá útaf því að framundan eru átta bikarúrslitaleikir fyrir okkur. Uppgjöf er ekki í boði."


Úlfarnir verma botnsæti ensku úrvalsdeildarinnar og þurfa svo gott sem kraftaverk til að forðast fall. Edwards virðist trúa á kraftaverk.

„Við höfum núna nokkra daga í hvíld og svo mætum við í næsta leik. Ég get séð að strákarnir eru komnir með smá von og það er allt annað andrúmsloft á æfingasvæðinu heldur en fyrir nokkrum vikum. Það er mikilvægt að strákarnir mæti endurnærðir í næsta leik."

Wolves á þrjá útileiki í röð framundan gegn Brentford, West Ham og Leeds í úrvalsdeildinni. Þessir þrír leikir fara fram yfir rúmlega eins mánaðar tímabil og eru landsleikjahlé og páskar á milli.

„Þetta eru allt bikarúrslitaleikir. Við verðum að mæta fullir sjálfstrausts í þessa leiki ef við ætlum að breyta hlutunum. Markmiðið okkar er að reyna að vinna hvern einasta leik sem við keppum í."

Edwards var að lokum spurður hvort hann sæi mikinn mun á gæðum Liverpool liðsins á milli leikja. Wolves hafði óvænt betur þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í miðri viku.

„Mér fannst þeir vera betri í kvöld. Þeir pressuðu stífar en í síðasta leik og ákefðin var meiri."
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner