Óttar Magnús Karlsson kom inn á sem varamaður og tryggði Víkingi 2-2 jafntefli gegn Val í Pepsi-deildinni í kvöld.
Víkingur leiddi 1-0 í hálfleik en lenti 2-1 undir í seinni hálfleiknum áður en Óttar Magnús jafnaði metin með laglegum skalla. Hann er nokkuð sáttur með stigið.
Víkingur leiddi 1-0 í hálfleik en lenti 2-1 undir í seinni hálfleiknum áður en Óttar Magnús jafnaði metin með laglegum skalla. Hann er nokkuð sáttur með stigið.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 2 Valur
„Við lentum þarna undir 2-1 þannig að úr því sem komið var, þá var fínt að ná í stigið. Við hefðum auðvitað viljað taka þrjú stigin en svona er þetta bara," sagði Óttar Magnús við Fótbolta.net.
„Við byrjum aftur vel eins og á móti Stjörnunni en í seinni hálfleik dettur þetta niður og við fáum tvö mörk á okkur. En við bara bætum úr því í næsta leik. Við erum ekki orðnir vanir að sigra þannig þegar við náum fyrsta sigrinum dettur þetta vonandi í gang."
Óttar er ánægður með innkomu sína og markið sem hann skoraði.
„Þetta var fín byrjun og gott að setja hann þarna. Það er bara fínt að skora, ég er ánægður með þetta," sagði Óttar Magnús, sem stefnir á að ná sér í sæti í byrjunarliðinu.
Athugasemdir





















