Trafford áfram á óskalista Newcastle - Man City vill bjóða leikmenn í skiptum fyrir Tonali - Wharton til Real Madrid?
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
Með landsliðið í huga þegar hann færði sig um set - „Kominn í frekar lélega stöðu“
Elías Rafn: Það er draumur allra að spila í Premier League
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Hef trú á að við getum unnið Frakkland
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
   fim 17. maí 2018 20:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kristján Guðmunds: Mjög skrítin byrjun á liðinu
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, var pirraður eftir 2-1 tap gegn Fylki inn í Egilshöllinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 -  1 ÍBV

Fylkismenn komust snemma yfir eftir skelfileg mistök markvarðar ÍBV. Staðan varð 2-0 á 89. mínútu áður en ÍBV klóraði í bakkann. Mark Vestmannaeyinga kom of seint.

„Ég er pirraður að hafa ekki náð að klára færin til að jafna leikinn og vinna hann svo," sagði Kristján.

„Að byrja illa kostar okkur þennan leik, mjög skrítin byrjun á liðinu sem ég þarf að skoða betur. Það var lítið um samskipti og menn voru að varpa ábyrgðinni yfir á einhvern annan."

„Við vorum miklu betra liðið í seinni hálfleik."

Halldór Páll Geirsson er varamarkvörður ÍBV. Fær hann að koma inn í næsta leik eftir mistök Derby Carrillo í kvöld?

„Við þurfum að skoða þetta betur. Þetta lítur mjög illa út. VIð þurfum að skoða þátt allra í markinu."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner