Watkins og Sesko efstir á óskalista Man Utd - Newcastle hefur einnig áhuga á Sesko - Everton vill Grealish
   þri 29. júlí 2025 14:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hópur U17 fyrir mót í Ungverjalandi - Einn úr 4. deildinni
Markús Andri Daníelsson Martin er fæddur árið 2010 og hefur spilað ellefu leiki með Hamri í 4. deild í sumar og lék níu leiki í fyrra.
Markús Andri Daníelsson Martin er fæddur árið 2010 og hefur spilað ellefu leiki með Hamri í 4. deild í sumar og lék níu leiki í fyrra.
Mynd: Hamar
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í Telki Cup æfingamóti sem fram fer í Ungverjalandi dagana 11. – 17. ágúst næstkomandi. Liðið æfir á Íslandi 9. og 10. ágúst áður en haldið er til Ungverjalands þann 11. ágúst.

Íslenska liðið kemur til með að mæta Ungverjalandi, Írlandi og Tyrkland á mótinu.

Flestir leikmenn koma frá Stjörnunni eða þrír talsins. Það vekur athygli að Hamar á einn fulltrúa í hópnum, en liðið er í 4. deild. Markús Andri Daníelsson Martin er leikmaður Hamars og á að baki þrjá leiki með U15 og þrjá með U16.

Hópurinn
Alexander Rafn Pálmason - KR
Skarphéðinn Gauti Ingimarsson - KR
Aron Daði Svavarsson - FH
Aron Freyr Heimisson - Stjarnan
Bjarki Hrafn Garðarsson - Stjarnan
Ðuro Stefan Bejic - Stjarnan
Birkir Þorsteinsson - Breiðablik
Egill Valur Kalsson - Breiðablik
Jakob Ocares Kristjánsson - Þróttur R.
Björn Darri Oddgeirsson - Þróttur R.
Brynjar Óðinn Atlason - ÍA
Jón Viktor Hauksson - ÍA
Markús Andri Daníelsson Martin - Hamar
Matthías Kjeld - Valur
Tómas Blöndal Petersson - Valur
Nenni Þór Guðmundsson - Leiknir F.
Nökkvi Arnarsson - HK
Róbert Agnar Daðason - Afturelding
Snorri Kristinsson - KA
Þorri Ingólfsson - Víkingur R.
Athugasemdir
banner