Man Utd gæti reynt við Pope - Arsenal vonar að Palace lækki verðið á Eze
   þri 29. júlí 2025 20:12
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjudeildin: Þór stekkur upp í þriðja sæti
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór 2 - 0 Grindavík
1-0 Rafael Victor ('57)
2-0 Haraldur Björgvin Eysteinsson ('78, sjálfsmark)

Lestu um leikinn: Þór 2 -  0 Grindavík

Þór og Grindavík áttust við í fyrsta leik kvlödsins í Lengjudeildinni og var staðan markalaus eftir rólegan fyrri hálfleik. Þórsarar voru meira með boltann en Grindvíkingar fengu besta færi hálfleiksins skömmu fyrir leikhlé.

Heimamenn í Boganum skiptu um gír í síðari hálfleik og tók forystuna með auðveldu marki frá Rafael Victor eftir góðan undirbúning frá Ibrahima Balde.

Bæði lið fengu þó góð færi til að skora áður en Þórsarar tvöfölduðu forystuna með sjálfsmarki. Fyrirgjöf frá Sverri Páli Ingasyni fór af Haraldi Björgvini Eysteinssyni og rúllaði boltinn þaðan í netið.

Það var ekkert að frétta á lokakaflanum svo þægilegur 2-0 sigur Þórsara eftir tíðindalítinn leik er staðreynd.

Þór fer upp í þriðja sæti með þessum sigri, með 27 stig eftir 15 umferðir. Akureyringar stökkva yfir Þrótt R. og HK, sem eiga þó leik til góða.

Grindavík situr eftir í áttunda sæti með 14 stig, aðeins fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Njarðvík 15 8 7 0 36 - 14 +22 31
2.    ÍR 14 8 5 1 26 - 12 +14 29
3.    Þróttur R. 15 8 4 3 28 - 23 +5 28
4.    Þór 15 8 3 4 34 - 22 +12 27
5.    HK 15 8 3 4 26 - 18 +8 27
6.    Keflavík 15 7 4 4 34 - 24 +10 25
7.    Völsungur 14 5 2 7 24 - 30 -6 17
8.    Grindavík 15 4 2 9 29 - 42 -13 14
9.    Selfoss 14 4 1 9 15 - 29 -14 13
10.    Fylkir 15 2 5 8 20 - 26 -6 11
11.    Fjölnir 14 2 4 8 21 - 35 -14 10
12.    Leiknir R. 15 2 4 9 13 - 31 -18 10
Athugasemdir
banner