Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
Orri um andlega áskorun: Einn af fáum jákvæðum punktum úr þessu
Arnar á keppnisvellinum: Leikstíll sem er ekki allra
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vonandi virka markaskórnir í kvöld
   sun 17. september 2017 09:00
Magnús Már Einarsson
Katrín: Landsliðið er mikið betra en Klaksvík
Kvenaboltinn
Katrín á æfingu í vikunni.
Katrín á æfingu í vikunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er gaman að koma loksins aftur á æfingu með landsliðinu," sagði Katrín Ásbjörnsdóttir við Fótbolta.net í vikunni. Katrín er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Færeyjum í fyrsta leik í undankeppni HM á Laugardalsvelli á morgun.

„Þær eru sterkar og ýta frá sér. Þær eru líkamlega góðar. Við þurfum að nýta hraðann okkar og þá vinnum við þær," sagði Katrín um færeyska liðið.

Katrín var í liði Stjörnunnar sem burstaði KÍ Klaksvík frá Færeyjum 9-0 í undankeppni Meistaradeildarinnar á dögunum.

„Við nýttum færin okkar úti. Það eru bara fjórar úr landsliðinu í Klaksvík. Þær voru mikið að ýta frá sér og eru sterkar. Við vitum að landsliðið er mikið betra en Klaksvík. Við getum ekki verið að bera það neitt saman. Við ætlum ekki að gefa neitt eftir. Mörkin telja líka í þessu að lokum og við þurfum að skora," sagði Katrín.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Athugasemdir
banner