Þessa stundina eigast við Tottenham Hotspur og Southampton í ensku úrvalsdeildinni en Tottenham var einu marki yfir í hálfleik.
Leikurinn er gífurlega þýðingarmikill fyrir bæði lið en heimamenn í Southampton berjast fyrir lífi sínu í deildinni á meðan Tottenham reynir að ná topp fjórum.
Richarlison þurfti að fara meiddur af velli eftir einungis nokkrar mínútur í liði Tottenham en gestirnir frá London tóku forystuna í uppbótartíma fyrri hálfleiksins.
Bakvörðurinn Pedro Porro fékk þá góða sendingu frá Son Heung-Min og komst í fínt færi sem var þó eilítið þröngt. Spánverjinn lét það ekki stoppa sig heldur þrumaði hann knettinum í slánna og inn.
Che Adams jafnaði hins vegar metin strax í byrjun síðari hálfleiksins og því er allt jafnt á ný.
Athugasemdir