Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
banner
   fim 19. mars 2026 16:00
Kári Snorrason
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Víkingur mætir Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildarinnar þann 10. apríl.
Víkingur mætir Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildarinnar þann 10. apríl.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá fundinum í dag.
Frá fundinum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mætast Gylfi og Jói í fyrsta leik?
Mætast Gylfi og Jói í fyrsta leik?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings héldu kynningarfund í Fossvoginum í dag þar sem félagið afhjúpaði nýja treyju, hannaða af Halldóri Smára, og kynnti nýjan samstarfsaðila, en Boozt verður á treyjum liðsins á komandi tímabili.

Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, var á meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum og ræddi Fótbolti.net við hann, en rúmar þrjár vikur eru þar til flautað verður til leiks í Bestu deildinni.

„Það byggist alltaf meiri og meiri eftirvænting því nær sem dregur. Það er alltaf þannig og gerir það svo sannarlega hjá okkur. Við vorum að koma úr góðri æfingaferð sem gekk mjög vel. Við erum á flottum stað, nokkurn veginn á staðnum sem við viljum vera á fyrir mót. Þannig við erum mjög spenntir.“

Hvernig er staðan á hópnum?
„Hún er góð. Það eru allir frískir nema Daði Berg. Sem er í sínu bataferli. Hann á dálítið eftir í því. Annars eru allir komnir út á völl og byrjaðir að spila. Sveinn Margeir þar á meðal, hann er kominn aftur út á gras. Staðan er mjög góð á hópnum þegar kemur að meiðslum.“

Stór hópur og stór markmið
„Það er flott að opnunarleikurinn sé á móti Breiðabliki, byrjum þetta strax með látum. Þetta verður hörku tímabil. Við erum að fara verja titil. Það hefur reynst erfitt síðustu ár en með hópinn sem við erum með í dag er ég mjög bjartsýnn á að okkur takist það.

Við þurfum að vera með stóran hóp til að ná okkar markmiðum. Til að keppast um alla titlana á Íslandi og að ná langt í Evrópu þá þarf hópurinn að vera stór og sterkur. Við teljum okkur vera með þannig hóp í ár.“


Vonast til að sjá Jóa í grænu
Mikið hefur verið rætt og ritað um að Jóhann Berg sé á heimleið og muni ganga í raðir Breiðabliks. Sölvi segist vonast til þess að sjá hann í grænu í sumar.

„Það væri frábært að fá Jóa inn í íslensku deildina. Hann myndi gera hana ennþá skemmtilegri. Vonandi kemur hann heim og í Blikana, þá verður þetta enn skemmtilegra einvígi.“

Nánar er rætt við Sölva í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner