sun 19. apríl 2020 08:00
Heiðar Birnir Torleifsson
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Einstaklingsmiðuð þjálfun í fótbolta
Heiðar Birnir Torleifsson
Heiðar Birnir Torleifsson
Mynd: Coerver Coaching
Mynd: Coerver Coaching
Mynd: Coerver Coaching
Mynd: Coerver
Mín skoðun er sú að árangur liða er undir gæðum einstaklinganna sem þau skipa kominn. Það er hægt að tala um gildi leikkerfa, leikstíla, leikgreininga. En þegar allt er á botninn hvolft eru það gæði leikmannanna sjálfra sem skilja á milli.

Nálgunin í þjálfuninni þarf því að vera einstaklingsmiðuð að mínu mati!

Óháð leikkerfum og leikstílum þá eru það ætíð leikmennirnir sem geta búið til eitthvað úr engu sem vinna leikina. Í yngri flokkum má aldrei liðið vera í forgangi heldur einstaklingarnir. Leikæfingar eiga að vera í smáum hópum með auknu erfiðleikastigi. Æfingarnar leikgrænar og aðlaðandi.

Heimaæfingar eru gríðarlega mikilvægur þáttur og er gaman að sjá menn nú á þessum erfiðleikatímum duglega að hvetja til þeirra á meðal ungra iðkenda.

Í meistaraflokki, sérstaklega í efstu deildunum hvort heldur er hér heima eða erlendis þá eru nánast allar upplýsingar uppi á borðinu og aðgengið að öllu í því sambandi alltaf að verða betra og betra. Það er fátt ef ekkert sem kemur mótherjum liða lengur á óvart því möguleikinn á að greina allt niður í smáatriði er svo mikill.

Þess þá heldur er mikilvægi leikmanna sem geta komið mótherjanum í opna skjöldu og búið til eitthvað úr engu meira og meira.

Í dag eru margir þessarar sömu skoðunnar og hér er viðruð. Sá sem viðraði þessa skoðun fyrst og var litinn hornauga fyrir vikið, er nú að margra mati álitinn Einstein fótboltans, Wiel Coerver. Á næsta ári verður áratugur frá því hann kvaddi okkur en hans skoðanir og hugmyndir eru alltaf að hljóta meiri hljómgrunn eftir því sem tíminn líður.

Það er. t.a.m. nokkuð merkilegt að mörg lið eru farin að ráða þjálfara sem eru sérfræðingar í tækniþjálfun í sitt þjálfarateymi. Sum hafa meira segja gengið svo langt að ráða tækniþjálfara sem aðstoðarstjóra. Besta dæmið nú um stundur er Pepijn Lijnders hjá Liverpool. Tækniþjálfarar eru því orðnir fastur hluti af þjálfarateymi margra félaga erlendis í dag.

Menn eru farnir að sjá það hvað einstaklingsmiðuð þjálfun er gríðarlega mikilvæg í fótbolta.

Sir Alex Ferguson var einna fyrstur manna á hinu hæðsta stigi fótboltans til að fara þessa vegferð þegar hann réð Rene Meulensteen til starfa hjá
Man. Utd rétt eftir aldamótin.

Sir Alex hafði þetta að segja um ráðninguna fyrir nokkrum árum. „Ein af ástæðunum fyrir því að við réðum Rene var þekking hans og reynsla af Coerver Coaching æfingaáætluninni. Ásetningurinn í upphafi var að bæta tæknilega færni ungu leikmannanna en allir leikmennirnir nutu síðar góðs af þjálfuninni, ekki eingöngu ungu leikmennirnir”.

Ég myndi vilja sjá íslensk félög fara í þessa vegferð. Einnig myndi ég vilja sjá íslenska þjálfara leggja sig meira fram um það að mennta sig á þennan hátt. Því mannauðurinn til slíkra verka er til staðar og gildi tækniþjálfunnar er klárlega framtíðin að mínu mati.

Þau félög og knattspyrnusambönd sem ekki leggja áherslu á einstaklingsmiðaða þjálfun munu sitja eftir, og þess eru dæmi nú þegar.

Besta dæmið er Holland og er það nokkuð merkilegt í ljósi þess að upphafsmaður einstaklingsmiðaðar þjálfunnar í fótbolta sé hinn hollenski Wiel Coerver. Kannski sannast því hið forkveðna „engin er spámaður í eigin föðurlandi“

Eftir að ungir leikmenn í Hollandi hættu að leika sér í fótbolta á götum úti eins og þeir gerðu í gamla daga(og æfðu þar tækniatriðin), lentu Hollendingar í stórkostlegum vandræðum með að ala upp leikmenn á sama gæðastigi og áður. Áherslan á lið og taktík í þjálfun hefur orðið til þess við nútíma aðstæður, eru stjörnuleikmenn Hollands ekki lengur til í þeim mæli sem áður var. Van Pierse og Robben eru þeir síðustu að mínu mati og þess má geta að báðir voru þeir í þjálfun hjá Wiel Coerver.

Ég talaði um Rene Meulensteen(sem einnig er hollenskur) áðan en það er þekkt staðreynd að hann gengdi algjöru lykilhlutverki í að hjálpa Cristiano Ronaldo að verða sá leikmaður sem hann síðar varð.

Ef einstaklingsþjálfun er og var nauðsynleg/mikilvæg fyrir leikmann eins og Cristiano Ronaldo. Af hverju er hún það þá ekki að sama skapi fyrir alla aðra?

Það sem er svo frábært við einstaklingsmiðaða þjálfun í fótbolta er að allir njóta góðs af henni. Hvort heldur er iðkendur í yngri flokkum eða leikmenn í meistaraflokki, og á hvaða getustigi sem er.

Ef allir bæta sig þá næst meiri árangur í hvaða mynd sem er.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner