Liverpool gefst ekki upp á Isak - Newcastle vill Rashford - Gyökeres neitar að ræða við Sporting
   fim 19. júní 2025 22:42
Elvar Geir Magnússon
Mjólkurbikarinn: Valur mætir Stjörnunni - Vestri fær Fram í heimsókn
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Ljóst er hvaða lið mætast í undanúrslitum Mjólkurbikarsins en dregið var í bikarþætti á RÚV 2 í kvöld.

Birkir Sveinsson mætti í beina útsendingu og hafði umsjón með drættinum með aðstoð sérfræðinga RÚV; Ólafs Kristjánsson og Harðar Magnússonar.

Valur fékk heimaleik og mun mæta Stjörnunni. Vestri fékk heimaleik en það verða Framarar sem fara til Ísafjarðar.

Undanúrslit:
Valur - Stjarnan
Vestri - Fram

Fylgst var með drættinum í beinni textalýsingu
22:39
Þá er drættinum lokið


Eyða Breyta
22:39
VESTRI - FRAM
Rúnar Kristinsson og lærisveinar fara til Ísafjarðar.

Eyða Breyta
22:38
VALUR - STJARNAN
Rosalegur leikur

Eyða Breyta
22:38
Vestri fær heimaleik
Fagnað á Ísafirði.

Eyða Breyta
22:38
Valur fær heimaleik


Eyða Breyta
22:38
Byrjað verður að draga heimaliðin tvö
Það er byrjað að draga...

Eyða Breyta
22:37
Leikdagar eru settir 30. júní og 1. júlí
En það gæti eitthvað breyst, Valur er að taka þátt í Evrópu.

Eyða Breyta
22:32
Verið að fjalla um síðasta leikinn...
Það er verið að fjalla um sigur Vestra gegn Þór. Þegar umræðu um þann leik er lokið verður dregið.

Eyða Breyta
22:18
Eyjamenn áttu að fá víti
Hörður Magnússon sérfræðingur RÚV segir alveg ljóst að ÍBV hafi átt að fá vítaspyrnu í leiknum gegn Val. Hann skilur pirringinn í Eyjamönnum.

,,Eyjamenn eru bara rændir. Það er óskiljanlegt að dómarinn hafi ekki séð þetta eða aðstoðarmenn hans. Bjarni er í miklum vandræðum, er illa staðsettur og notar höndina til að hemja boltann. Mér finnst vanhæfni að hafa ekki séð þetta," segir Hörður í þættinum en ÍBV vildi fá dæmda hendi á Bjarna Mark Duffield þegar 20 mínútur voru eftir.

,,Þessi leikur hefði mögulega farið í framlengingu og mér fannst Eyjaliðið heilt yfir sterkara í leiknum," bætir Hörður við og er sammála því að honum fannst ekki mikið samræmi í ákvörðunum Twana dómara.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Eyða Breyta
22:17
Þátturinn í fullum gangi
Það er verið að fjalla um sigurleik Vals gegn ÍBV. Verður fróðlegt að sjá hvað menn segja um Twana dómara en óhætt er að segja að skiptar skoðanir hafi verið á dómgæslunni hjá þjálfurunum.

   19.06.2025 21:05
Láki: Til skammar hversu einhliða dómgæslan var

   19.06.2025 20:47
Túfa hrósar Twana: Þjálfarar sem tapa tala oft um dómgæsluna


Eyða Breyta
22:01
Bikarkvöldið á RÚV fer að hefjast...
Dregið verður í lok þáttarins svo það er enn nokkur bið eftir að hrært verður í pottinum. Vestri, Stjarnan, Valur og Fram eru nöfnin sem eru í pottinum.

Eyða Breyta
21:51
Framarar í stuði í Mosó


Eyða Breyta
21:49
Hér er bein textalýsing frá Mosó:
Afturelding - Fram

Eyða Breyta
21:47
Nokkrar mínútur eftir í Mosfellsbæ
Afturelding er að tapa 0-1 gegn Fram. Það er 87. mínúta á klukkunni þegar þetta er skrifað. Ef Afturelding jafnar er framlengt og þá verður bið á markaþætti RÚV og þar með bið á drættinum.

Eyða Breyta
21:46
Valsmenn unnu nauman sigur gegn ÍBV
Valur fór til Vestmannaeyja og vann nauman útisigur en Hólmar Örn Eyjólfsson skoraði markið sem skildi liðin að.

   19.06.2025 19:47
Mjólkurbikarinn: Sjáðu markið sem kom Val í undanúrslit


Eyða Breyta
21:45
Besta deildin vann Lengjudeildina í gær
Tveir leikir voru í 8-liða úrslitunum í gær. Í báðum tilfellum unnu lið úr Bestu deildinni mótherja sína úr Lengjudeildinni. Vestri vann Þór örugglega og Stjarnan vann svo Keflavík í skemmtulegum leik.

   18.06.2025 19:37
Mjólkurbikarinn: Vestri í undanúrslit - Skoruðu tvö á sex mínútum

   18.06.2025 21:54
Mjólkurbikarinn: Stjarnan í undanúrslit annað árið í röð


Eyða Breyta
21:43
Dregið verður í beinni á RÚV
Átta liða úrslit Mjólkurbikarsins verða gerð upp í Bikarkvöldi á RÚV 2 klukkan 21:50 og þar verður dregið í undanúrslitin.

Birkir Sveinsson mótastjóri KSÍ mætir í beina útsendingu og hefur umsjón með drættinum með aðstoð sérfræðinga RÚV.

Horfðu á RÚV 2 í beinni

Eyða Breyta
Athugasemdir