Alonso mikill aðdáandi Zubimendi - Funda í þriðja sinn um Fernandes - Ten Hag að taka við Leverkusen?
   lau 20. maí 2023 19:53
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Bayern klúðraði málunum - Leipzig í Meistaradeildina
Bayern 1 - 3 RB Leipzig
1-0 Serge Gnabry ('25 )
1-1 Konrad Laimer ('64 )
1-2 Christopher Nkunku ('76 , víti)
1-3 Dominik Szoboszlai ('85 , víti)

Bayern München tapaði mikilvægum leik gegn RB Leipzig í dag, 3-1, í næst síðustu umferð þýsku deildarinnar.

Heimamenn í Bayern fóru með 1-0 forystu inn í hálfleikinn þökk sé marki Serge Gnabry en Leipzig kom inn í síðari hálfleikinn af krafti.

Konrad Laimer jafnaði metin á 64. mínútu áður en Benjamin Pavard braut af sér í teignum á 75. mínútu. Christopher Nkunku skoraði úr vítinu áður en Noussair Mazraoui handlék knöttinn klaufalega í teignum níu mínútum síðar.

Dominik Szoboszlai fór á punktinn í síðara skiptið og gerði út um leikinn. Lokatölur 3-1 fyrir Leipzig sem er búið að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir næsta tímabil en titillinn er að renna úr greipum Bayern sem er á toppnum með 68 stig.

Borussia Dortmund mætir Augsburg á morgun og ef liðið vinnur þar er það komið í lykilstöðu fyrir lokaumferðina.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 24 7 2 95 32 +63 79
2 Leverkusen 33 19 11 3 70 41 +29 68
3 Eintracht Frankfurt 33 16 9 8 65 45 +20 57
4 Freiburg 33 16 7 10 48 50 -2 55
5 Dortmund 33 16 6 11 68 51 +17 54
6 Mainz 33 14 9 10 53 41 +12 51
7 RB Leipzig 33 13 12 8 51 45 +6 51
8 Werder 33 13 9 11 50 56 -6 48
9 Gladbach 33 13 6 14 55 56 -1 45
10 Stuttgart 32 12 8 12 57 51 +6 44
11 Augsburg 32 11 10 11 34 45 -11 43
12 Wolfsburg 33 10 10 13 55 54 +1 40
13 Union Berlin 33 9 10 14 33 50 -17 37
14 St. Pauli 33 8 8 17 28 39 -11 32
15 Hoffenheim 33 7 11 15 46 64 -18 32
16 Heidenheim 33 8 5 20 36 60 -24 29
17 Holstein Kiel 33 6 7 20 49 77 -28 25
18 Bochum 33 5 7 21 31 67 -36 22
Athugasemdir
banner
banner