Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. maí 2023 18:20
Stefán Marteinn Ólafsson
Byrjunarlið Vals og Keflavíkur: Adam Ægir mætir gömlu félögunum
Valur gerir fimm breytingar - Keflavík tvær
Adam Ægir Pálsson mætir sínum gömlu félögum
Adam Ægir Pálsson mætir sínum gömlu félögum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Erlendur Eiríksson flautar til leiks viðreign Vals og Keflavíkur klukkan 19:15 í kvöld þegar þessi lið eigast við í 8.umferð Bestu deild karla hér á Origo vellinum á Hlíðarenda.

Bæði lið koma særð inn í þennan leik eftir erfiða bikarviku þar sem heimamenn í Val féllu sannfærandi út gegn Lengjudeildarliði Grindavíkur hér á þessum velli í vikunni en gestirnir í Keflavík áttu ekki góða ferð í Garðabæinn þar sem þeim var hent öfugum út af Stjörnunni.


Lestu um leikinn: Valur 0 -  0 Keflavík

Valsmenn gera fimm breytingar á liði sínu frá því í bikarleiknum gegn Grindavík en inn í liðið koma Hlynur Freyr Karlsson, Elfar Freyr Helgason, Kristinn Freyr Sigurðsson, Adam Ægir Pálsson og Andri Rúnar Bjarnason fyrir þá Birki Heimisson, Hauk Pál Sigurðsson, Guðmund Andra Tryggvason, Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Jóhannsson.

Gestirnir í Keflavík gera sömuleiðis tvær breytingar á sínu liði frá bikarleiknum gegn Stjörnunni en inn koma Ernir Bjarnason og Ásgeir Páll Magnússon fyrir Daníel Gylfason og Jordan Smylie.


Byrjunarlið Valur:
1. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Hlynur Freyr Karlsson
4. Elfar Freyr Helgason
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Orri Hrafn Kjartansson
24. Adam Ægir Pálsson
99. Andri Rúnar Bjarnason

Byrjunarlið Keflavík:
13. Mathias Rosenörn (m)
6. Sindri Snær Magnússon
11. Stefan Ljubicic
16. Sindri Þór Guðmundsson
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
18. Ernir Bjarnason
19. Edon Osmani
22. Ásgeir Páll Magnússon
25. Frans Elvarsson
50. Oleksii Kovtun
86. Marley Blair
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner