Víkingur tapaði fyrir FH 2-3 í Pepsi-deildinni í kvöld. Ólafur Þórðarson var ekki sáttur við dómgæslu Þorvaldar Árnasonar í leiknum. Þá sérstaklega í fyrri hálfleik þegar Viktor Jónsson var að komast í dauðafæri þegar staðan var markalaus en Jón Ragnar Jónsson braut á honum.
Ólafur vildi fá rautt spjald en Þorvaldur lyfti gulu.
Ólafur vildi fá rautt spjald en Þorvaldur lyfti gulu.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 3 FH
„Stærsta atvik leiksins er þegar hann sleppir því að gefa Jóni rautt. Hann hafði ekki kjark. Viktor var sloppinn í gegn og ef hann flautar og það er rautt spjald," sagði Ólafur.
„Mér fannst við ekki taka forystuna (1-0) gegn gangi leiksins. Við vörðumst vel, þeir voru ekki að skapa sér neitt og svo skorum við fínt mark úr fyrsta færinu okkar. Ég er ósáttur við aulaskap minna manna að hafa gefið þennan leik frá sér."
Í stöðunni 1-1 missti Víkingur mann af velli með rautt. Varamaðurinn Ventseslav Ivanov fékk tvö gul spjöld með skömmu millibili. Það seinna fyrir meint olnbogaskot.
„Það tók langan tíma fyrir dómarann að ákveða hvað hann ætlaði að gera. Hann lét FH-ingana tala þetta spjald á hann," sagði Ólafur.
Aron Elís Þrándarson byrjaði á bekknum en Ólafur segir hann einfaldlega ekki hafa staðið sig nægilega vel að undanförnu.
„Ungir strákar spila upp og niður og hann er ungur. Það er ekkert verið að refsa honum neitt og hann stóð sig nokkuð vel þegar hann kom inn."
Viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir






















