Thuram á óskalistum Arsenal, Liverpool og Man Utd - Ólíklegt að Real reyni við Rodri - Liverpool vill Diomande
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
„Það er ekkert lið á Íslandi svona gott"
„Ég skoraði nokkur svona á hana á Hlíðarenda"
„Mér finnst rauður fara henni betur"
Séra Davíð Þór fer yfir viðburðaríka mánuði í Skírisskógi - „Stórhættulegur brandari“
Enski boltinn - Horfðu á þáttinn í mynd
„Jói er Breti og ég elska Breta“
banner
   fös 27. maí 2016 12:45
Jóhann Ingi Hafþórsson
Viðtal
Veigar Páll: Við ætlum alla leið í báðum keppnum
Veigar Páll Gunnarsson.
Veigar Páll Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Veigar Páll Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar var brattur þegar Fótbolti.net tók hann á tal þegar búið var að draga í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins í dag.

Hann lýsti yfir ánægju sinni með að hafa slegið Víking Ó. í síðustu umferð en það var ansi tæpt þar sem Víkingur var marki yfir þegar ein mínúta var eftir.

„Þetta var hörkuleikur, tvö frábær lið að kljást, Víkingur er með frábært lið, eftir leikinn erum við virkilega ánægðir með að hafa náð að slá þá út."

Hörður Fannar Björgvinsson, ungur markmaður Stjörnunnar var í markinu og varði hann vítið sem að lokum tryggði Stjörnuna sigur í vítaspyrnukeppni.

„Það var magnað fyrir hann og maður var glaður í hjartanu að hann var hetjan í gær."

Hann segir markmið Stjörnunnar vera ansi háleit.

„Við ætlum að fara alla leið í báðum keppnum."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner