Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 12:00
Elvar Geir Magnússon
Ederson: 99% eru falsfréttir
Brasilíski markvörðurinn Ederson er á leið inn í síðasta ár samnings síns við Manchester City.
Brasilíski markvörðurinn Ederson er á leið inn í síðasta ár samnings síns við Manchester City.
Mynd: EPA
Markvörðurinn Ederson segir að framtíð sín sé hjá Manchester City en hann er á leið í síðasta ár samnings síns hjá félaginu.

Brasilíumaðurinn er 31 árs og kom til City frá Benfica 2017. Hann hefur verið sterklega orðaður við Sádi-Arabíu og greindi frá því í október að það væri risatilboð á borðinu.

„Framtíð mín er hér. Sumir vinir mínir senda mér einhverjar fréttir en 99% af þeim eru falsfréttir. Það er mikið af bullfréttum í kringum mig," segir Ederson sem er með City á HM félagsliða í Bandaríkjunum.

„Hugur minn er algjörlega hjá félaginu. Ég vil vinna ensku úrvalsdeildina aftur og reyna að vinna Meistaradeildina líka. Það gæfi mér allt."

Portúgalski landsliðsmarkvörðurinn Diogo Costa hefur verið orðaður við City en hann er með 64 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum.

Pep Guardiola, stjóri City, var spurður út í framtíð Ederson.

„Ég veit það ekki. Ég er bara svo ánægður með það sem ég hef séð frá honum á æfingasvæðinu og að hann sé með okkur. Hann hefur átt magnaða tíma með okkur og hans framlag hefur verið rosalegt á svo mörgum sviðum," svaraði Guardiola.
Athugasemdir
banner
banner
banner