
Það styttist heldur betur í stóru stundina í Sviss, en Ísland er á leið á sitt fimmta Evrópumót í röð.
Núna hefur UEFA gefið út á heimasíðu sinni hvernig númerin verða á komandi Evrópumóti hjá íslenska liðinu. Svona verða þau:
Núna hefur UEFA gefið út á heimasíðu sinni hvernig númerin verða á komandi Evrópumóti hjá íslenska liðinu. Svona verða þau:
1. Cecilía Rán Rúnarsdóttir (m)
2. Berglind Rós Ágústsdóttir
3. Sandra María Jessen
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Sædís Rún Heiðarsdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
8. Alexandra Jóhannsdóttir
9. Diljá Ýr Zomers
10. Dagný Brynjarsdóttir
11. Natasha Anasi
12. Telma Ívarsdóttir (m)
13. Fanney Inga Birkisdóttir (m)
14. Hlín Eiríksdóttir
15. Katla Tryggvadóttir
16. Hildur Antonsdóttir
17. Agla María Albertsdóttir
18. Guðrún Arnardóttir
19. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir
20. Guðný Árnadóttir
21. Hafrún Rakel Halldórsdóttir
22. Amanda Andradóttir
23. Sveindís Jane Jónsdóttir
Það eru tíu leikmenn með sama númer og á EM 2022 en það eru Glódís, Ingibjörg, Dagný, Telma, Agla María, Guðrún, Áslaug Munda, Guðný, Amanda og Sveindís Jane.
Af þeim sem voru líka á EM 2022 þá breyta þrír leikmenn um númer. Karólína Lea verður númer 7 en ekki 8, Alexandra verður númer 8 en ekki 15 og Cecilía Rán verður númer 1 en ekki 13.
Leikir Íslands á EM:
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir