Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 14:38
Elvar Geir Magnússon
Arsenal í viðræðum við Valencia um Mosquera
Mosquera (til hægri) í leik með Valencia.
Mosquera (til hægri) í leik með Valencia.
Mynd: EPA
Arsenal er í viðræðum við Valencia um möguleg kaup á varnarmanninum Cristhian Mosquera.

Mosquera er 20 ára Spánverji sem getur spilað sem miðvörður og sem hægri bakvörður.

Arsenal hefur sýnt Marc Guehi hjá Crystal Palace áhuga en hann er sagður efins um að fara til Arsenal þar sem Gabriel Magalhaes og William Saliba hafa leikið frábærlega í hjarta varnarinnar.

Mosquera er U21 landsliðsmaður Spánar. Hann hefur spilað 90 leiki fyrir aðallið Valencia og var fastamaður á síðasta tímabili þar sem hann spilað 90 mínútur í 37 af 38 deildarleikjum.

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Arsenal en félagið er á barmi þess að tryggja sér miðjumanninn Christian Nörgaard frá Brentford og markvörðinn Kepa Arrizabalaga frá Chelsea.

Þá hafa Myles Lewis-Skelly og Gabriel framlengt samninga sína við félagið.
Athugasemdir
banner