Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 17:30
Elvar Geir Magnússon
Sheringham: Líklegt að Man Utd fái skell í fyrsta leik
Neville, Beckham og Sheringham hressir árið 1999.
Neville, Beckham og Sheringham hressir árið 1999.
Mynd: EPA
Fyrrum leikmaður Manchester United, Teddy Sheringham, hefur lýst áhyggjum sínum af fyrstu viðureign liðsins í ensku úrvalsdeildinni á komandi tímabili, þar sem liðið mætir Arsenal á heimavelli.

Sheringham spáir mögulegu stórtapi, jafnvel 4-0, og telur að það gæti skapað pressu strax á núverandi stjóra liðsins, Rúben Amorim.

„Ef Arsenal nær snemma forystu og bætir jafnvel við mörkum, gæti það sett United í erfiða stöðu. Þetta var alls ekki leikur sem United vildi fá strax í byrjun," segir Sheringham.

„Arsenal mun mæta fullt sjálfstrausts. Þeir mæta með meðbyr og gott lið á meðan United er enn að reyna að finna sig undir Amorim."

Manchester United og Arsenal mætast á Old Trafford sunnudaginn 17. ágúst, í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner