Bayern veitir Man Utd samkeppni um Anderson - Liverpool hefur áhuga á Camavinga - Óvissa með leikmenn Arsenal
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
   fim 26. júní 2025 22:33
Stefán Marteinn Ólafsson
Gunnar Heiðar: Litli bróðir er ekki svo lítill lengur
Lengjudeildin
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur
Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík tók á móti nágrönnum sínum úr Keflavík á JBÓ vellinum í kvöld þegar tíunda umferð Lengjudeildarinnar hóf göngu sína.


Lestu um leikinn: Njarðvík 3 -  1 Keflavík

„Ótrúlega ánægður með strákana og þvílíkur karakter í þessu liði" sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson þjálfari Njarðvíkinga eftir leikinn í kvöld.

„Komum til b?ka á móti erfiðu Keflavíkurliði 1-0 og samt halda áfram að gera það sem við vorum að gera. Við fundum það að þetta var að fara koma, við vorum að fá mjög góð færi en vorum ekki að nýta þau. Við vissum að þetta myndi koma ef við myndum bara halda áfram" 

„Fyrsta markið kemur og það sáu það allir að við ætlum að ná í annað markið og við ætluðum að ná í þriðja markið og það gerðum við og það er bara hrikalega gott að sjá það" 

„Þvílíkur plús á strákana sem að komu inná hérna. Strákarnir sem að fengu tækifærið til að starta. Við vorum með þrjá í banni, þetta er akkurat það sem ég er búin að vera að tala um. Það er þessi hópur sem að við erum með hérna. Ég treysti hverjum einasta leikmanni til að spila hérna fyrir mig og það er svo ógeðslega gott að sjá það sem þjálfari að allir séu on og allir eru í þessu saman" 

Gunnar Heiðar notaði svo tækifærið undir lok viðtals til þess að koma skilaboðum til Njarðvíkinga.

„Fyrir ykkur Njarðvíkinga. Munið það að nú er Reykjanesbær loksins orðin grænn. Litli bróðir er ekki svo lítill lengur, nú er hann orðin helvíti stór þannig njótið á meðan þið getið.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner