Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 16:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Mín skoðun að hann þurfi að fara frá Liverpool"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Harvey Elliott skoraði í gær tvennu fyrir enska U21 landsliðinu í undanúrslitum EM. Enska liðið vann það hollenska og mætir þýska liðinu í úrslitum um helgina.

Elliott hefur verið frábær með enska liðinu en hann er leikmaður Liverpool þar sem hann fékk að margra mati ekki að spila nóg í vetur. Hann hefur í raun aldrei almennilega náð að stimpla sig inn sem byrjunarliðsmaður hjá Liverpool.

Jason Cundy og Jamie O'Hara, fyrrum leikmenn Tottenham, ræddu um Elliott á talkSPORT í morgun.

„Það er mín skoðun að hann þurfi að fara frá Liverpool," sagði Cundy.

„Ef hann er samtals með minna en 4-5 leiki þegar horft er í mínútur þá þarf hann að fara, og það eru mörg lið sem geta notað hann."

„En sama hvert hann fer frá Liverpool, þá verður það skref til baka."


O'Hara vill sjá sína menn í Tottenham reyna fá Elliott. „Ef hann vill spila alla leiki, þá þarf hann að taka skref atur á bak. Ég myndi taka við honum hjá Tottenham, 100% klár í það."

„Hann myndi berjast við Brennan Johnson og Kulusevski sem er nokkuð svipaður, en það er eitthvað við Elliott. Hann getur spilað sem tía, getur spilað í fleiri stöðum, getur spilað á miðjunni, ég er hrifinn af mörgu hjá honum."


Elliott, sem er 22 ára, spilaði alls 360 mínútur í 18 leikjum í úrvalsdeildinni og 167 mínútur í fimm leikjum í Meistaradeildinni á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner