Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
banner
   fim 26. júní 2025 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola í skýjunum: Langt síðan við sýndum svona frammistöðu
Mynd: EPA
Manchester City vann stórsigur á Juventus á HM félagsliða í kvöld.

City var í miklum vandræðum á síðasta tímabili en endaði að lokum í 4. sæti úrvalsdeildarinnar en var aldrei í neinni titilbaráttu. Guardiola var ánægður að sjá gamla góða takta hjá liðinu í kvöld.

„Hvernig við fórum að þessu. Það er langt síðan við sýndum svona frammistöðu, með og án boltans. Þetta er bara einn leikur en leikmennirnir fundu hvað þeir þurfa til að verða gott lið aftur," sagði Guardiola.

Það var jákvætt fyrir City að Rodri spilaði rúmlega klukkutíma en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn hans síðan í september þegar hann sleit krossband.
Athugasemdir
banner