Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 10:15
Elvar Geir Magnússon
Dregið í Fótbolti.net bikarnum á morgun
Keppninni lýkur með úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Keppninni lýkur með úrslitaleik á Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á morgun föstudag klukkan 12:00 verður dregið í 16-liða úrslit Fótbolti.net bikarsins, bikarkeppni neðri deilda.

Öllum leikjum nema einum í 32-liða úrslitum er lokið en KFS og Vængir Júpiters mætast mánudaginn 7. júlí.

16-liða úrslitin fara fram miðvikudaginn 16. júlí.

Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net

Þessi lið verða í pottinum:

2. deild: Kári, KFA, Höttur/Huginn, Grótta, Þróttur V., Ægir, Víkingur Ó., Kormákur/Hvöt, KFG.

3. deild: Tindastóll, Ýmir, Reynir S., KV, Árbær.

4. deild: Álftanes og KFS eða Vængir.
Athugasemdir
banner
banner