Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Man City fór illa með Juventus
Mynd: EPA
Man City og Juventus voru búin að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum á HM félagsliða áður en liðin mættust í kvöld en liðin kepptust um toppsætið í riðlinum.

Man City komst yfir snemma leiks en Teun Koopmeiners jafnaði metin fljótlega eftir slæm mistök hjá Ederson sem sendi boltann beint á Koopmeiners.

Pierre Kalulu varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark og koma City aftur yfir. Erling Haaland kom inn á í hálfleik og var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn. Það tók einnig Phil Foden aðeins þrjár mínútur að skora eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Savinho skoraði síðan fimmta markið áður en Dusan Vlahovic skoraði sárabótamark. City endar því á toppnum og Juvetus í öðru sæti. Al-Ain endar í 3. sæti og Wydad á botninum.

Það voru einnig góðar fréttir fyrir City að Rodri spilaði rúman klukkutíma en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikurinn hans síðan hann meiddist illa í september í fyrra.

Juventus 2 - 5 Manchester City
0-1 Jeremy Doku ('9 )
1-1 Teun Koopmeiners ('11 )
1-2 Pierre Kalulu ('26 , sjálfsmark)
1-3 Erling Haaland ('52 )
1-4 Phil Foden ('69 )
1-5 Savinho ('75 )
2-5 Dusan Vlahovic ('85 )

WAC Casablanca 1 - 2 Al Ain
1-0 Cassius Mailula ('4 )
1-1 Kodjo Laba ('45 , víti)
1-2 Kaku ('50 )
Athugasemdir
banner