Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 13:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Dóri Árna: Fáránlega erfiður andstæðingur
'Extra tilhlökkun að spila þessa leiki gegn þeim liðum sem mæta til þess að spila til sigurs'
'Extra tilhlökkun að spila þessa leiki gegn þeim liðum sem mæta til þess að spila til sigurs'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan er á góðu skriði.
Stjarnan er á góðu skriði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Höskuldur og Tobias Thomsen, lykilmenn í liði Breiðabliks, verða ekki með á morgun.
Höskuldur og Tobias Thomsen, lykilmenn í liði Breiðabliks, verða ekki með á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Bjarnason er tæpur.
Aron Bjarnason er tæpur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jökull og Dóri eru báðir fæddir 1984 og eru í grunninn KR-ingar.
Jökull og Dóri eru báðir fæddir 1984 og eru í grunninn KR-ingar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Jónsson sneri aftur á völlinn á mánudag eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Kristinn Jónsson sneri aftur á völlinn á mánudag eftir langa fjarveru vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ætlum að gera allt til að ná í góð úrslit'
'Ætlum að gera allt til að ná í góð úrslit'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég er ofboðslega þakklátur fyrir stuðninginn í síðustu þremur leikjum og yrði í hjarta mínu virkilega glaður ef þetta heldur svona út sumarið'
'Ég er ofboðslega þakklátur fyrir stuðninginn í síðustu þremur leikjum og yrði í hjarta mínu virkilega glaður ef þetta heldur svona út sumarið'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er geggjað að fá Steven Caulker í deildina, þetta er alvöru ferilskrá," sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, þegar Fótbolti.net heyrði í honum í dag.

Framundan er stórleikur Stjörnunnar og Breiðabliks á morgun og fyrsta spurningin var út í tíðindi dagsins, komu enska leikmannsins Steven Caulker sem er genginn í raðir Stjörnunnar.

13. umferðin í Bestu deildinni hefst annað kvöld með tveimur leikjum og lýkur svo á sunnudag með fjórum leikjum.

„Þessi leikur leggst virkilega vel í mig, síðustu daga hef ég horft á síðasta leik við þá, það var hrikalega skemmtilegur leikur, einn af skemmtilegri leikjum sumarsins. Það er alltaf gaman að mæta Stjörnunni, þeir vilja pressa og geta bæði verið beinskeyttir og spilað boltanum. Þetta eru yfirleitt mjög fjörugir leikir og ég er mjög spenntur," segir Dóri. Fyrri leikur liðanna fór fram í 3. umferð og þá vann Breiðablik 2-1 með sigurmarki undir lok leiks.

Betri stöðugleiki og liðsheild lykillinn
Stjarnan kemur inn í leikinn á miklu skriði. Er eitthvað búið að breytast hjá þeim sem þú hefur tekið eftir?

„Bara það augljósa held ég, þeir hafa fundið betri stöðugleika í liðsvali, gamla góða klisjan: fundu svolítið liðið sitt. Þeir hafa fundið taktinn, eru með gott lið, með mikið sjálfstraust og á góðu skriði. Þeir eru á fínum stað, náðu að rúlla aðeins á liðinu í síðasta leik og hvíla lykilmenn. Þeir verða fáránlega erfiður andstæðingur á morgun, munu mæta fullir sjálfstrausts og við þurfum að berja það sjálfstraust úr þeim hratt og örugglega."

„Þetta Stjörnulið snýst miklu meira um liðið sjálft og liðsheildina frekar en einstaka leikmenn. Liðsheildin hefur verið þeirra styrkleiki síðustu vikur."


Spenntir og kokhraustir
Hvernig metur Dóri stöðuna á sínu liði fyrir leikinn?

„Við erum vonsviknir að hafa gert klaufalegt jafntefli á heimavelli í síðasta leik, en þar á undan voru tveir virkilega sterkir sigrar og frábær frammistaða. Við erum fullir sjálfstraust líka og ætlum okkur ekkert annað en sigur í Garðabæ. Við erum spenntir og kokhraustir. Við ætlum okkur að spila góðan leik og gera allt sem við getum til að ná í góð úrslit."

Breiðablik gerði 1-1 jafntefli gegn Fram á Kópavogsvelli í síðustu umferð. Breiðablik skoraði jöfnunarmarkið undir lok leiks.

Risastórt fyrir Breiðablik
Breiðablik endurheimti Kristin Jónsson í síðasta leik. Vinstri bakvörðurinn spilaði sínar fyrstu mínútur á tímabilinu í seinni hálfleiknum gegn Fram. Hversu mikilvægt er að endurheimta hann?

„Það er mjög mikilvægt. Við erum ekki alveg komnir á þann stað að hann sé kominn til baka eins og nýr leikmaður, hann er auðvitað ekkert búinn að spila síðan í október. Það er gríðarlega mikilvægt að fá hann aftur í hópinn og hver einasta mínúta sem hann getur spilað er mikilvæg og ef við getum fjölgað þeim hægt og rólega þá er það risastórt fyrir okkur."

Þrír tæpir fyrir leikinn á morgun
Hvernig er með stöðuna á Aroni Bjarnasyni?

„Aron, Kristófer (Ingi Kristinsson) og Ásgeir Helgi (Orrason) eru 'gameday decision'. Þeir æfa í dag og við tökum ákvörðun í framhaldinu hvort þeir geti verið með."

„Aron fór í sprautu sem við vonuðumst til að myndi minnka verkina. Ef að niðurstaðan verður sú að honum líður betur og muni ekki skemma neitt með því að spila, þá erum við bjartsýnir að hann geti tekið einhvern þátt á næstu dögum og vikum. Morgundagurinn er stórt spurningarmerki ennþá."


Vonbrigði hvernig lykilmenn fengu spjöldin
Tveir af bestu leikmönnum Breiðabliks verða ekki með á morgun. Hvernig leysir Breiðablik það að vera án Höskuldar Gunnlaugssonar og Tobias Thomsen á morgun?

„Við fórum af stað inn í tímabilið með stóran og breiðan hóp, settum saman hóp sem gæti dílað við að missa menn í leikbönn og meiðsli. Þó að það vanti þetta marga þá verðum við með mjög sterkt byrjunarlið á morgun, eins og í öllum leikjum."

„Það eru vonbrigði að svona reyndir leikmenn fái spjöld með þessum hætti, það verður bara að segjast eins og er, en það er bara búið að taka það fyrir og ræða það og lærdómur fyrir allt liðið í því. Jú jú, það er auðvitað högg í nokkrar mínútur þegar þú sérð að þeir eru báðir í banni, en svo ferðu að hugsa hvernig þú leysir það, kemst að einhverri niðurstöðu og hættir svo að pæla í því."

„Við leysum það með því að einhverjir aðrir koma inn, erum með breiðan og góðan hóp. Það verða ellefu mjög góðir leikmenn sem byrja leikinn á morgun."


Thomsen fékk gult spjald fyrir að fara með tösku sjúkraþjálfara Fram af velli á meðan hann var að sinna meiddum leikmanni. Höskuldur fékk rautt spjald fyrir hans tilraun til að ná boltanum eftir að hann jafnaði leikinn. Breiðablik var án Höskuldar fyrr í sumar og tapaði þá 1-4 gegn ÍA á heimavelli. Hann skoraði sigurmarkið gegn Stjörnunni í fyrri leik liðanna.

Extra tilhlökkun að spila þessa leiki
Þetta er nágrannaslagur og Dóri mætir á hliðarlínunni vini sínum Jökli Elísabetarsyni. Er þessi leikur öðruvísi en aðrir leikir?

„Nei, það er bara stigsmunur á leikjunum í deildinni, sama hvort það er Jökull eða einhver annar. Það er búin að vera þróun í deildinni, sterkast þetta ár og aðeins byrjaði í fyrra, að fleiri lið en færri í deildinni mæta til leiks til þess að tapa ekki, vernda jafnteflið, frekar en að sækja til sigurs. Það eru margar leiðir til þess að spila fótbolta og ég ber virðingu fyrir því, en það verða oft ekkert skemmtilegustu leikirnir."

„Stjarnan er alls ekki eitt af þeim liðum, þeirra leikir eru opnir og skemmtilegir eins og okkar leikir. Það er kannski extra tilhlökkun að spila þessa leiki gegn þeim liðum sem mæta til þess að spila til sigurs. Við erum virkilega spenntir að taka þátt í því."


Mætir góðum vini sínum
Eru samskiptin við Jökul öðruvísi í aðdragandi innbyrðisleikja? Takið þið viku þar sem þið talið ekki saman, eða hvernig er þetta?

„Nei, ég veit ekki hvort það sé komin vika síðan við tókum saman hádegismat. Það eru ekkert dagleg samskipti í aðdraganda leiksins, enda væri það kannski sérstakt, en ef mig myndi langa að hringja í hann og ræða við hann, þá myndi ég gera það. Það hefur bara ekki komið til þess," segir Dóri á léttu nótunum. „Þetta er bara leikur eins og hver annar."

Ómetanlegur stuðningur
Stuðningurinn við Breiðablik í síðustu leikjum hefur verið meiri í síðustu leikjum. Hversu mikilvægt er að það sé góður stuðningur úr stúkunni?

„Það er bara ómetanlegt, það er ekkert að ástæðulausu að menn tala um það. Það að hafa svona háværan og sýnilegan stuðning gefur manni auka orku, gefur manni eitthvað aukalega, hvetur menn til að leggja ennþá meira á sig. Það er hrikalega dýrmætt að hafa stuðningsmannasveitina á sem flestum leikjum. Hún getur hjálpað okkur að vinna, stundum gerum við jafntefli og stundum töpum við, en stuðningurinn er alltaf jafnmikilvægur. Ég er ofboðslega þakklátur fyrir stuðninginn í síðustu þremur leikjum og yrði í hjarta mínu virkilega glaður ef þetta heldur svona út sumarið," segir Dóri.

Leikurinn annað kvöld hefst klukkan 19:15 og fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ.
Besta-deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 12 8 2 2 24 - 13 +11 26
2.    Breiðablik 12 7 2 3 20 - 17 +3 23
3.    Valur 12 6 3 3 30 - 17 +13 21
4.    Stjarnan 12 6 2 4 23 - 20 +3 20
5.    Vestri 12 6 1 5 13 - 9 +4 19
6.    Afturelding 12 5 2 5 14 - 15 -1 17
7.    Fram 12 5 1 6 19 - 18 +1 16
8.    FH 12 4 2 6 17 - 16 +1 14
9.    ÍBV 12 4 2 6 13 - 19 -6 14
10.    KR 12 3 4 5 31 - 32 -1 13
11.    KA 12 3 3 6 10 - 20 -10 12
12.    ÍA 12 3 0 9 13 - 31 -18 9
Athugasemdir
banner