Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 18:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungstirni Dortmund á leið til FC Kaupmannahafnar
Mynd: EPA
Youssoufa Moukoko, leikmaður Dortmund, er á leið til FC Kaupmannahöfn en Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Moukoko er tvítugur en hann var yngsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar þegar hann spilaði sinn fyrsta leik rétt rúmlega 16 ára gamall.

Hann var ósáttur með spiltímann sinn hjá þýska liðinu og var lánaður til Nice á síðustu leiktíð. Hann lék 22 leiki fyrir franska liðið og skoraði tvö mörk.

Romano segir nú frá því að FCK sé að kaupa Moukoko fyrir um 5 milljónir evra og hann fari í læknisskoðun á morgun.
Athugasemdir
banner
banner