

Tíunda umferð Lengjudeildarinnar fer af stað í kvöld og það er áhrifavaldurinn Arnar Laufdal sem spáir í leikina að þessu sinni. Arnar er þessa stundina í Serbíu þar sem hann er að sjá um samfélagsmiðlasköpun fyrir kvennalandsliðið í aðdraganda Evrópumótsins sem hefst í Sviss í næstu viku.
Njarðvík 2 - 1 Keflavík (19:15 í kvöld)
Þeir grænu í Reykjanesbæ taka þennan leik og koma sér á toppinn í bili. Keflvíkingar eru ennþá að sleikja sárin eftir að hafa sent Rúnar Inga Eysteinsson á lán í Vogana og það sést á markaskorun liðsins. Eina von Keflvíkinga til þess að sigra þennan leik er að byrja með Ara Stein í liðinu, þvi? miður sé það ekki gerast og Njarðvíkingar refsa þeim fyrir það.
Fjölnir 3 - 3 Þór (18:00 á morgun)
Þetta verður leikur umferðarinnar 100%. Fjölnismenn með suddalega frammistöðu í síðustu umferð og leika á alls oddi, Bjarni Hafstein með Neymar takta þarna úti vinstra megin. Ungir og sprækir Þórsarar svara með þremur mörkum, stórmeistara jafntefli.
ÍR 2 - 0 Grindavík (19:15 á morgun)
ÍR bara of seigir og vinna þennan leik þægilega og skora tvö í fyrri. Búnt á skenkinn, Halli Eysteins á vegginn með Kristó litla Pálssyni ná því miður ekki að koma í veg fyrir þessi mörk og Grindjánar fara heim með sárt ennið og Sölvi Haralds syngur og trallar til morguns #FreeJónþórAtli.
Selfoss 1 - 2 Leiknir R. (19:15 á morgun)
Gústi Gylfa verður með einhver sturluð gleraugu á bekknum having a laugh meðan að hans lærisvænar sækja þrjá risa punkta og HammerTime setur tvö. Pælið svo í því? Þeir eiga bara Óskar Jónsson inni!
Þróttur R. 1 - 3 HK (19:15 á morgun)
Þvi? miður fyrir þann gríska og Þróttara þá eru HK alltaf að fara taka 3 punkta með aflitaða galdrakallinn Tuma Þorvars innan sinna raða. Ætli Dagur Garðars setji ekki a.m.k tvö kvikindi?
Völsungur 2 - 1 Fylkir (13:00 á laugardag)
Einmitt líklegt dagsins að Fylkismenn geri sér leið á Húsavík og sækja þrjá punkta, ekki fræðilegur. Alli Jó er við stýrið og er að gera magnaða hluti með Völlarana, Ágúst Brynjars verður á fóninum fyrir leik, hálfleik og eftir leik sem gírar Húsvíkinga í þrjú stig.
Fyrri spámenn:
Ásgeir Marteins (2 réttir)
Sævar Atli (2 réttir)
Hrafnkell Freyr (4 réttir)
Júlíus Mar (4 réttir)
Elmar Atli (3 réttir)
Bjarki Björn (3 réttir)
Guðjón Pétur (1 réttur)
Oliver Heiðars (1 réttur)
Elmar Kári (1 réttur)
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 9 | 5 | 4 | 0 | 12 - 4 | +8 | 19 |
2. Njarðvík | 9 | 4 | 5 | 0 | 21 - 9 | +12 | 17 |
3. HK | 9 | 5 | 2 | 2 | 17 - 9 | +8 | 17 |
4. Þór | 9 | 4 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 14 |
5. Þróttur R. | 9 | 4 | 2 | 3 | 16 - 15 | +1 | 14 |
6. Völsungur | 9 | 4 | 1 | 4 | 15 - 19 | -4 | 13 |
7. Keflavík | 8 | 3 | 3 | 2 | 15 - 9 | +6 | 12 |
8. Grindavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 22 - 19 | +3 | 11 |
9. Leiknir R. | 9 | 2 | 2 | 5 | 10 - 22 | -12 | 8 |
10. Fylkir | 9 | 1 | 4 | 4 | 10 - 14 | -4 | 7 |
11. Fjölnir | 9 | 1 | 3 | 5 | 11 - 19 | -8 | 6 |
12. Selfoss | 9 | 2 | 0 | 7 | 6 - 19 | -13 | 6 |
Athugasemdir