Liverpool að blanda sér í baráttuna um Gyökeres - Chelsea nálgast kaup á Gittens - Newcastle vill styrkja sig
   fim 26. júní 2025 16:10
Elvar Geir Magnússon
Forráðamenn Chelsea funda með Dortmund í Bandaríkjunum
Gittens nálgast Chelsea.
Gittens nálgast Chelsea.
Mynd: EPA
Heimildir ESPN herma að Chelsea sé að nálgast samkomulag við Borussia Dortmund um vængmanninn Jamie Gittens eftir að fulltrúar liðanna áttu viðræður í Bandaríkjunum þar sem HM félagsliða fer fram.

Tveimur tilboðum frá Chelsea í leikmanninn tvítuga var hafnað fyrr í þessum mánuði í stuttum félagaskiptaglugga sem var búinn til fyrir HM félagsliða.

Dortmund vill yfir 50 milljónir punda fyrir Gittens en frekari samningaviðræður hafa átt sér stað við Chelsea.

Gittens skoraði 12 mörk í 48 leikjum í öllum keppnum síðasta tímabil, þar á meðal fjögur í Meistaradeildinni.

Chelsea tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum HM félagsliða á þriðjudaginn eftir 3-0 sigur á Esperance de Tunis þar sem Liam Delap skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið.
Athugasemdir
banner